You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Kynna viðburði á öllum stjórnstigum sem byggðir eru á rannsóknum og leiða til

aðgerða og nýsköpunar í vöruþróun og markaðssetningu

Forgangsraða í þágu verkefna sem falla að stefnu á landsvísu en taki mið af

sérstökum aðstæðum á hverju svæði og viðurkenna norðlæga- og

frumbyggjaferðaþjónustu (northern and aboriginal) sem mikilvæga atvinnugrein

Þróa sterk, sveigjanleg og skapandi sambönd meðal lykilaðila í ákvarðanatöku í

ferðaþjónustu á öllum stigum stjórnkerfisins

Ýta undir samstarf og samræmt skipulag til að auka skilvirkni í samræmi við

hlutverk og ábyrgð hvers aðila

Þróa stefnu sem hvetur til sjálfbærra vinnubragða í ferðaþjónustu

(Industry Canada, 2006, bls. 3)

Sérstakur stuðningur frá ríkisstjórninni 2009

Aukinn stuðningur við ferðaþjónustuna á að stuðla að vexti og hjálpa til við að

færa Kanada framar í huga ferðamanna, bæði innlendra og erlendra

20 milljónir Kanadadollara fara í markaðsherferðir og auglýsingar CTC

100 milljónir verða lagðar í verkefni eins og svæðishátíðir og viðburði víða um

landið á tveggja ára tímabili

http://pm.gc.ca/eng/media.asp?id=2613 (Hér er talið upp hvað á að gera fyrir

ferðaþjónustuna)

2.1.1. Markmið stefnumörkunar

Meðal þess sem lagt er upp með er að yfirvöld á öllum stjórnstigum vinni náið saman og í

samstarfi við einkageirann til að tryggja að Kanada verði meðal 10 helstu áfangastaða

ferðamanna í heiminum þegar horft er til heimsókna erlendra ferðamanna og eyðslu hvers

ferðamanns á sólarhring.

Þá er það haft að leiðarljósi að umfang ferðaþjónustunnar, þ.e. heildartekjur bæði af innlendri

ferðaþjónustu og af erlendum ferðamönnum, verði komnar í 100 milljarða CAD árið 2015.

(Tekjur á árinu 2010 voru 74 milljarðar CAD en markið hafði verið sett á 75 milljarða CAD

fyrir það ár).

Almennt eru þetta stefnumarkmið í ferðaþjónustu á landsvísu í Kanada:

12