Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
http://www.canadabusiness.ca/eng/summary/6594/

Sérstakur stórviðburðastyrkur á landsvísu

Marquee Tourism Events Program: Hleypt af stokkunum 2009 í takt við átak á fjárlögum til

styrktar vaxandi atvinnugreinum líkt og ferðaþjónustu. Verkefninu er ætlað að styrkja

stórviðburði sem miða að því að ná alþjóðlegri athygli og laða að mikinn fjölda erlendra

gesta. Styrkir geta numið allt að þremur milljónum CAD.

http://www.ic.gc.ca/eic/site/dsib-tour.nsf/eng/h_qq00160.html

4.3. Formlegt eða óformlegt samstarf milli hefðbundinna atvinnuvega og

„skapandi“ greina við ferðaþjónustuna.

Kanada skorar hátt á lista WEF í skýrslu stofnunarinnar um samkeppnishæfni í ferðaþjónustu

í heiminum þegar kemur að skapandi greinum. Þær greinar eru taldar vera sterkar í Kanada

auk þess sem margir alþjóðlegir viðburðir (t.d. kvikmyndahátíðir, tónleikar, listahátíðir) fara

fram í landinu ár hvert. Þetta er talið styðja við ferðaþjónustuna í landinu og gera hana

samkeppnishæfari við önnur lönd. (World Economic Forum, 2011, bls. 14).

CTC bendir sérstaklega á mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir skapandi greinar í Kanada í

ársskýrslu sinni með því að vekja strax á fyrstu blaðsíðu skýrslunnar athygli á því hversu stór

viðskiptavinur ferðaþjónustan er í heild fyrir skapandi atvinnugreinar (t.d. hönnuði,

auglýsingaframleiðendur o.fl.).

Formlegt samstarf ferðaþjónustunnar við skapandi greinar virðist vera lítið a.m.k. á landsvísu

og einkum tengt sérstökum viðburðum, t.d. hátíðum.

CTC og Parks Canada, sem er stofnun sem sér um rekstur allra þjóðgarða í Kanada, hafa þó

með sér samstarf um að nýta söguslóðir og uppbyggingu í görðunum (t.d. sýningasali, söfn

o.fl.) betur. Þetta samstarf fór í gang í tengslum við Vetrarólympíuleikana 2010 og miðar að

því að nýta athyglina sem þeir hafa fengið (og gert er ráð fyrir að þeir fái áfram þrátt fyrir að

vera búnir) í þágu menningar (Canada.Travel - Partnerships).

5. Sprotar í ferðaþjónustu

Af þeim gögnum sem farið hefur verið yfir vegna þessarar skýrslu verður ekki annað ráðið en

að stuðningur við nýsköpun í ferðaþjónustu sé af skornum skammti í Kanada. Ýmsir styrkir

44