You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Bls. 37–38

Við vinnu með verkefni á bls. 37 og 38 er miðað við að nemendur hafi sentikubba. Hér

er verið að leggja grunn að skilningi á rúmmáli. Ef ekki eru til sentikubbar gæti verið gott

að vinna sambærileg verkefni með annars konar kubbum. Það er mikilvægt að nemendur

geti unnið á hlutbundinn hátt og séð hvernig kubbunum fjölgar eftir því sem einhver

hliðarlengdin eykst. Ekki ber að fara í formúluna fyrir rúmmáli ferstrendinga heldur á að

leggja grunn að því að nemendur skilji á hvaða hugmynd hún hvílir. Skoða má rúmmál með

því að mæla lítramál og er slíkt verkefni að finna á vinnuspjaldi 25.

Í lok kaflans er gott að fara yfir efni hans. Hér hefur verið lögð áhersla á að til er tvívídd og

þrívídd og að nemendur geti rætt um eiginleika forma.

Vinnuspjöld úr möppu

21 Teningarnir hennar Kolbrúnar

22 Þríhyrningsmynstur

23 Kubbabyggingar

24 Teningaþraut

25 Rúmmálsmælingar

Geisli 1A – Lausnir – © Námsgagnastofnun 2011 – 09072

..... Rúmfræði og þrívídd

32