You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
20 ára afmælisrit Lagnafélags Íslands

Gunnar Sigurðsson, Byggingarfulltrúi í Reykjavík

Hilmar Sigurðsson, Félag ráðgjafarverkfræðinga

Jóhannes Þorsteinsson, Iðntæknistofnun

Jón Björnsson, Félag ráðgjafarverkfræðinga

Jón K. Gunnarsson, Iðnfræðingafélag Íslands

Jón Óskarsson,Vatnsveita Reykjavíkur

Jónas Valdimarsson, stjórn LAFÍ

Páll Árnason, Iðntæknistofnun

Sigurður Harðarson, Iðnskólinn í Reykjavík

Steindór Guðmundsson, Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins

Sæbjörn Kristjánsson, stjórn LAFÍ (millibil)

Theódór Árnason, Brunamálstofnun ríkisins

Þórður Ólafur Búason,Verkfræðingafélag Íslands

Málshefjandi á þessum fyrsta fundi Fagráðs LAFÍ var formaður þess, Guðni Jóhannesson. Þar reifar hann fyrst

þá hugmynd að ráðið skipti sér niður í smærri hópa þar sem hver hópur sinni sérsviðum, svo sem blikksmíði,

pípulögnum, hönnun o.s.frv. Þetta varð síðan að föstu skipulagi í störfum Fagráða.

Fagráð:

F.v: Guðmundur Halldórsson verkfræðingur, Jónas Valdimarsson pípulagningameistari, Fri ð rik S. Kristinsson tæknifræðingur, Hilmar Sigurðsson

verkfræðingur, Kristján Ottósson blikksmíðameisari, Guðni Jóhannesson verkfræðingur, Einar þorsteinsson tæknifæðingur,

Kristján Ingimundarson blikksmíðameistari

Þá er skipuð starfsnefnd til að gera tillögu um forgangsverkefni í staðlagerð fyrir lagnavinnu. Í þá nefnd voru

valdir þeir Jóhannes Þorsteinsson, Jón Björnsson, Kristján Ottósson og Sigurður Harðarson.

En síðan var tekið til umræðu málið sem þá brann á öllum; notkun plaströra í hita- og neysluvatnskerfi. Þetta

málefni átti síðan eftir að fylgja lagnamönnum hérlendis eftir sem skuggi þar sem hart var tekist á um hvort leyfa

skyldi yfir höfuð plastefni í lagnir innanhúss á Íslandi eða ekki. Þessar deilur hafa gárungar kallað „þrjátíu ára

stríðið“ því segja má að þær hafi staðið yfir frá 1970 – 2000 og verður síðar í þessari sögu komið að því

hvernig því lauk. Einmitt þess vegna er æði fróðlegt að fara hér yfir hvert var álit þeirra margfróðu manna sem

samnan voru komnir í Fagráði LAFÍ árið 1987 þegar stríðið var að ná hámarki og vel hálfnað. Svo vel vill til

að Hilmar Sigurðsson verkfræðingur hefur skráð þessar umræður afar nákvæmlega, þær eru vissulega fróðleg

söguleg heimild.

Plast í lögnum, á félagið að hafa skoðun á slíku máli?

Fyrri málshefjandi var Ásbjörn Einarsson, efnaverkfræðingur.

„Plaströr fyrir heitt vatn hafa verið á markaði í allmörg ár. Fyrir 10 árum kom hingað fulltrúi frá Rosen AB í

Svíþjóð og rak áróður fyrir plaströrum fyrir heitt vatn. Þessi áróður bar ekki árangur, sennilega fyrir staðfasta

andstöðu Hitaveitu Reykjavíkur. Hinar miklu vinsældir þessara röra í Svíþjóð hafa því aldrei náð til okkar.

Helstu gallar plaströra:

32