You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Fráfall lagnamanns

Ólafur Eggertsson

20 ára afmælisrit Lagnafélags Íslands

Frá því LAFÍ gekk í norræna sambandið Scanvac hafði Ólafur

Eggertsson tæknifræðingur verið fulltrúi Íslands í því samstarfi

en hann var fyrstu árin starfandi sem tæknilegur framkvæmdastjóri

Norges Rörleggersbedrifters Landsförening og

bjó í Oslo.

Í janúar 2002 lést hann sviplega langt um aldur fram. Þar hvarf

af vettvangi einn ágætur félagi sem var einstakur í allri samvinnu

og ætíð boðinn og búinn til starfa.

Nú var LAFÍ vandi á höndum að finna fulltrúa erlendra samskipta,

einkum þeim er sneru að Scanvac.Við því kefli tók Sigurður M. Harðarson,

tæknifræðingur/blikksmíðameistari, sem búsettur var í Danmörku.

Aðalfundur 2003

Fundurinn var haldinn í Lagnakerfamiðstöðinni 27. mars 2003, fundarstjóri var Guðmundur Hjálmarsson deildarstjóri

hjá Tækniskóla Íslands og ritari Hilmar Sigurðsson verkfræðingur hjá Hnit, verkfræðistofu.

Í stjórn voru kjörnir:

• Guðmundur Hjálmarsson byggingartæknifræðingur, formaður

• Hjálmar Jónssson byggingartæknifræðingur, verkefnisstjóri lagnadeildar Byggingarfulltrúans í Reykjavík

• Böðvar Ingi Guðbjartsson pípulagningamaður hjá Borgarlögnum ehf.

• Gestur Gunnarsson véltæknifræðingur og kennari við Iðnskólann í Hafnarfirði

• Páll Indriði Pálsson vélfræðingur

• Hilmar Sigurðsson byggingarverkfræðingur, sviðsstjóri hönnunardeildar og stjórnarformaður Hnita hf.

• Þórir Guðmundsson byggingarverkfræðingur, hjá hita- og loftræstideild Hátækni ehf.

• Már Erlingsson verkfræðingur, verkefnisstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins.

Í skýrslu framkvæmdastjóra Kristjáns Ottóssonar, kom fram að ein ráðstefna hafði verið haldin á starfsárinu

„Úttekt á lokafrágangi lagnakerfa“ og var hún haldin í Lagnakerfamiðstöðinni. Þar mætti Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra

og framsögumenn voru níu talsins. Athygli vakti að fulltrúi og framsögumaður frá Framkvæmdasýslu

ríkisisns lýsti því yfir að hans stofnun mundi í einu og öllu fara eftir Lagnahandbókinni sem LAFÍ lét

semja.

Á starfsárinu

Þar má nefna að bréf barst frá Umhverfisráðuneytinu þar sem m. a. stóð „að Lagnakerfamiðstöð Íslands fái

viðurkenningu ráðuneytisins til að gegna hlutverki tilnefnds aðila og annast staðfestingu á vrkni kerfa og gefa út

vottorð eða umsögn um lagnakerfi“.

Aðalfundur 2004

Fundurinn var haldinn í Lagnakerfamiðstöðinni,Valdimar K. Jónsson prófessor var fundarstjóri og Hilmar Sigurðsson

verkfræðingur fundarritari.

Rauði þráðurinn í skýrslu Kristjáns Ottóssonar var uppbygging Lagnakerfamiðstöðvar Íslands og það blómlega

námskeiðshald sem þar er komið á fullt skrið fyrir lagnamenn úr mismunandi iðngreinum, bæði iðnaðarmenn,

hönnuði og ýmsa aðra sem tengjast lögnum og lagnakerfum og þurfa á endurmenntun að halda.

Í stjórn voru kjörnir:

• Guðmundur Hjálmarsson tæknifræðingur, formaður

• Gestur Gunnarsson véltæknifræðingur

• Jón H. Gestsson verkfræðingur

• Heiðar Jónsson tæknifræðingur

• Hilmar Sigurðsson verkfræðingur, ritari

• Hjálmar Jónsson tæknifræðingur gjaldkeri

• Páll Indriði Pálsson vélfræðingur, varaformaður

85

Sigurður M.

Harðarson