You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
20 ára afmælisrit Lagnafélags Íslands

Lagnakerfamiðstöð Íslands

Þessu mikla hagsmunamáli hnikaði áleiðis. Í janúar 1996 hafði verið haldinn tímamótafundur til undirbúnings

stofnunar Lagnakerfamiðstöðvar hjá Húsnæðisstofnun ríkisins að Suðurlandsbraut 24 í Reykjavík. Þar rakti Vilhjálmur

Þ.Vilhjálmsson, formaður undirbúningsnefndar um stofnun Lagnakerfamiðstöðvar Íslands, hvað áunnist

hefði. Ýmsir fleiri tóku þar til máls og komu þar fram stuðningsyfirlýsingar frá Vilhjálmi Lúðvíkssyni framkvæmdastjóra

Rannsóknarráðs Íslands, Gunnari Björnssyni varaformanni Húsnæðisstofnunar ríkisins og Alfre ð

Þorsteinssyni formanni Veitustofnana Reykjavíkurborgar.

Byggingarreglugerð

Mikil vinna var lögð í það að endurskoða Byggingarreglugerð sem komin var til ára sinna og orðin nokkuð

lúin.Vissulega hafði LAFÍ enga stöðu eða vald til að breyta einu né neinu í reglugerðinni en eigi að síður var

það álit manna að lagnamenn ættu að láta sig þetta varða og ekki sitja hjá sofandi og fá síðan yfir sig Byggingarreglugerð

samda af lögfræðingum sem hefðu enga þekkingu á byggingariðnaði.

Mikilvæg ráðstefna

Í mars 1997 var haldin viðamikil ráðstefna undir heitinu Loftræsting í skólum.Var vel til hennar vandað og var

þetta daglöng ráðstefna. Fjöldi sérfræðinga héldu fyrirlestra. Einn erlendur gestur hélt erindi á ráðstefnunnu,

David Södergren ráðgjafarverkfræðingur hjá VBB Theorells í Stokkhólmi. Einn annar frummælandi kom frá

Noregi þó íslenskur væri. Það var Ólafur Eggertsson sem var tæknilegur framkvæmdastjóri hjá Norske Rörleggerbedrifters

Landsförening og Sigurður M. Harðarson tæknifræðingur frá Dansk Standard í Danmörku.Var

það mál manna að taka þyrfti betur á þessum málum, loftræstingu í skólum, þar væri mikil þörf á endurbótum.

Ráðstefnan var vel sótt.

Eins og sést á myndinni er vel mætt á fundinn og það var engin undantekning á fundi Lagnafélags Íslands hafa menn mætt af áhuga. Þar

flytja menn mál sitt vel undirbúið á stuttum tíma sem þýðir að fundarmenn beita athyglinni allann tímann.

Cold Climate og Íslendingur heiðraður

Ráðstefnan um hvernig er að búa í köldu loftslagi á norðurslóðum var haldin á Hótel Loftleiðum 30. apríl – 2.

maí 1997. Þetta var önnur ráðstefnan sem haldin hefur verið um þetta efni, hin fyrsta í Rovaniemi í Finnlandi.

Ráðstefnan tókst með ágætum og voru fjölmörg erindi flutt, þó misjöfn að gæðum. Fyrirlesarar komu víða að

m. a. frá Rússlandi, Japan og Alaska. Þá voru send inn erindi frá lagnamönnum í Tékklandi, Lettlandi, Kóreu og

Úkraniu.

Geta verður nokkurra íslenskra fyrirlesara. Hjörleifur Stefánsson arkitekt flutti fyrirlestur um íslenska torfbæinn

sem hélt lífinu í þjóðinni öldum saman,Valdimar K. Jónsson prófessor gaf fundarmönnum innsýn í nýtingu

jarðhita á Íslandi, Ragnar Ragnarsson verkfræðingur sagði frá ört vaxandi lagningu snjóbræðslukerfa hérlendis,

en strax á þessum árum voru snjóbræðslukerfi hvergi jafn útbreidd og á Íslandi. En ein mesta athygli erlendra

67