og Tyrkland. Öll engilsaxnesku löndin eru hlutfallslega með hærri útgjöld. Gögnin í töflu 5.1 eru því í takt við niðurstöður Bradshaw (2006), þ.e. að fjárstuðningur vegna framfærslu barna hér sé með lægri móti hér í samanburði við önnur vestræn lönd. 1 Tafla 5.1. Velferðarútgjöld til fjölskyldumála og stærð markhópsins, árið 2005. Heildarútgjöld til fjölskyldumála er samtala þjónustuútgjalda, fjárstuðnings og fæðingarorlofs (Heimildir: OECD, 2006 og 2010) Velferðarútgjöld til fjölskyldumála (hlutfall af VLF) Barnabætur og skattaafsl. 1 Fæðingarorlof 2 Hlutfall barna
Norðurlöndin auk Ungverjalands eru með hæstu útgjöldin til fæðingarorlofs, bæði hvað heildarútgjöld varðar og einnig þegar leiðrétt hefur verið fyrir hlutfall barna af íbúum. Hér á landi eru útgjöldin vegna fæðingarorlofs lægri en á hinum Norðurlöndunum en þó ein þau hæstu meðal allra OECD ríkja. Hér á landi eru útgjöld til fjárstuðnings vegna framfærslu barna þannig fremur rýr í alþjóðlegum samanburði á meðan að útgjöld til fæðingarorlofs eru fremur örlát. Í nýlegri skýrslu OECD (2009) er barnatengdum útgjöldum hins opinbera skipt niður eftir aldri barna. Um er að ræða útgjöld til dagvistunar, grunnskóla, fjárstuðnings (skattaafslættir eru meðtaldir), fæðingarorlofs og fleiri þátta, ekki er tekið tillit til heilbrigðiskostnaðar (sjá töflu 5.2). Tafla 5.2: Fjárstuðningur sem hlutfall af miðgildistekjum skipt eftir aldri barns, 2003. Fjárstuðningur inniheldur barnabætur, skattaafslætti vegna barna og fæðingarorlof. Fæðingarorlofs gætir einkum fyrstu tvö árin (Heimild: OECD, 2009). Fyrstu tvö árin 3-6 ára 7-11 ára 12-17 ára Norðurlöndin Danmörk 24,4 7,0 6,1 6,5 Finnland 30,4 7,9 7,2 5,8 Ísland 41,3 6,1 4,1 2,9 Noregur 44,5 8,1 7,2 6,7 Svíþjóð 28,6 8,4 6,6 6,2 Meðaltal 33,8 7,5 6,2 5,6 Meginlönd Evrópu Austurríki 28,7 13,7 13,5 13,5 Belgía 16,6 10,5 11,0 11,6 Frakkland 25,1 11,8 11,9 11,5 Ítalía 9,0 4,3 3,4 3,2 Lúxemborg 33,9 20,4 20,0 22,7 Holland 8,0 5,8 6,2 6,7 Portúgal 17,0 4,8 5,0 4,6 Spánn 13,3 2,6 2,4 2,4 Sviss 0,2 0,2 0,2 0,2 Þýskaland 27,4 13,7 13,6 13,6 Meðatal 17,9 8,8 8,7 9,0 Engilsaxneskar þjóðir Ástralía 15,4 10,7 7,5 8,9 Bandaríkin 5,4 5,4 5,3 4,5 Bretland 14,2 10,5 10,6 9,7 Írland 13,1 9,5 9,5 9,2 Nýja Sjáland 4,8 3,3 3,2 3,4 Meðaltal 10,6 7,9 7,2 7,2 Aðrar OECD þjóðir Grikkland 9,4 4,8 4,8 4,8 Japan 11,4 3,9 1,8 2,4 Kórea 0,7 0,6 0,6 0,6 Mexókó 6,0 6,1 6,1 6,1 Pólland 28,3 4,9 4,9 4,8 Slóvakía 26,0 21,1 8,9 8,8 Tékkland 38,4 9,5 8,3 9,0 Ungverjaland 66,5 10,9 10,9 10,6 Meðaltal 23,3 7,7 5,8 5,9 57