29.07.2014 Views

GENGU SAMAN TIL DÓMARA Baugsmálið er umfangsmesta ...

GENGU SAMAN TIL DÓMARA Baugsmálið er umfangsmesta ...

GENGU SAMAN TIL DÓMARA Baugsmálið er umfangsmesta ...

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

B A U G S M Á L I Ð D Ó M T E K I Ð

SEK EÐA

SAKLAUS?

TEXTI: JÓN G. HAUKSSON

MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON

Dómsdagur, sá fyrsti í þessu mikla máli. Þau gengu

saman sem ein liðsheild í Austurstrætinu á leið í Héraðsdóm

Reykjavíkur við Lækjartorg. Þau voru vel

klædd, afslöppuð, vel útlítandi, brosandi og geisluðu af

sjálfstrausti.

Þannig komu sakborningarnir sex í Baugsmálinu mönnum fyrir

sjónir þegar þeir gengu ásamt verjendum sínum inn í Héraðsdóm

Reykjavíkur hinn 17. ágúst þegar Baugsmálið var dómtekið.

Fréttamenn, innlendir sem útlendir, voru á útopnu í kringum þau.

Sennilega hafa sakborningar aldrei áður komið jafn sameinaðir fyrir

dómara Héraðsdóms Reykjavíkur. Þetta var eins og vel útfært atriði

í kvikmynd.

ÁKÆRAN ER RÖNG

„Ákæran er röng og ég er algjörlega saklaus,“ sagði Jón Ásgeir

Jóhannesson, forstjóri Baugs, þegar Pétur Guðgeirsson dómsforseti

spurði hann hvort ákæran á hendur þeim væri rétt eða röng. Þessi

setning telst mjög líklega setning ársins í íslensku viðskiptalífi, líkt og

myndin af sakborningum saman í Austurstrætinu á leið í Héraðsdóm

telst mynd ársins.

Aðrir sakborningar svöruðu á sömu leið og Jón Ásgeir. „Ákæran

er röng, ég er saklaus,“ hljómaði þegar Pétur Guðgeirsson dómsforseti

spurði ákærðu, einn af öðrum, hvort ákæran á hendur þeim væri

rétt eða röng.

HIN ÁKÆRÐU

Hin ákærðu eru: Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, Tryggvi

Jónsson, fyrrverandi forstjóri Baugs, Jóhannes Jónsson, stjórnarmaður

í Baugi, Kristín Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Gaums,

Stefán Hilmarsson endurskoðandi og Anna Þórðardóttir endurskoðandi.

Lögmenn sakborninganna eru: Gestur Jónsson, verjandi Jóns

Ásgeirs Jóhannessonar, Einar Þór Sverrisson, verjandi Jóhannesar

Jónssonar, Jakob R. Möller, verjandi Tryggva Jónssonar,

Kristín Edwald, verjandi Kristínar Jóhannesdóttur, og Þórunn

Guðmundsdóttir, verjandi Stefáns Hilmarssonar og Önnur Þórðardóttur.

Þinghaldið í Héraðsdómi stóð aðeins yfir í 20 mínútur en

þá frestaði Pétur því til 20. október. Fyrirsjáanleg eru mikil og

ströng réttarhöld sem setja munu svip sinn á fréttir vetrarins - svo

umfangsmikið er það.

Fari málið fyrir Hæstarétt er búist við að dómur hans liggi fyrir

næsta haust. Ákæruatriðin í málinu eru 40 talsins og málsskjöl yfir

20 þúsund blaðsíður. Þau verða ekki afhent fjölmiðlum.

Eðlilega varð ekki þverfótað fyrir fréttamönnum og ljósmyndurum

í Héraðsdómi þegar sexmenningarnir mættu ásamt lögmönnum

sínum. Þinghaldið hófst kl. 13.30 þennan dag og hófst á

því að Jón H. B. Snorrason, saksóknari og yfirmaður efnahagsbrotadeildar

ríkislögreglustjóra, fór yfir ákæruatriðin.

FJÖLSKIPAÐUR DÓMUR

Dómurinn er fjölskipaður. Meðdómendur Péturs eru þeir Arngrímur

Ísberg héraðsdómari og Garðar Valdimarsson, hæstaréttarlögmaður

Jón Gerald Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélagi Bónusfeðga, og

sá sem kærði málið til lögreglunnar, mætti við þingfestingu málsins.

22 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 5

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!