29.07.2014 Views

GENGU SAMAN TIL DÓMARA Baugsmálið er umfangsmesta ...

GENGU SAMAN TIL DÓMARA Baugsmálið er umfangsmesta ...

GENGU SAMAN TIL DÓMARA Baugsmálið er umfangsmesta ...

SHOW MORE
SHOW LESS

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

E N D U R S K O Ð U N

í mastersnám á tölvufræðum í

City University í London. Árið

1998 var ég orðinn 63 ára og þá

var kominn tími til að hætta og

snúa sér að áhugamálunum. Ég

gíraði mig aðeins niður, hætti

í Búnaðarbankanum og tók

að mér verkefni fyrir KPMG á

árunum 1998-2000. Verkefnin

fólust aðallega í því að sinna

áreiðanleikakönnunum og ráðgjafaverkefnum

á vegum tölvumála.

Eftir það lagði ég niður

störf og nýt eftirlaunaáranna við

tungumálagrúsk, golf, laxveiðar

og önnur áhugamál.“

Strik í reikninginn „Ég lenti

í því þegar ég var 42 ára að fá

heilablóðfall, æð sprakk í höfðinu,

í vertíðarlokum ársins 1982.

Ég gekkst þá undir aðgerð, var

frá vinnu í þrjá mánuði en náði

mér smám saman aftur. Læknir

minn, Bjarni Hannesson, sagði

mér að innan við 2% þeirra sem

fengju heilablóðfall á þessum

stað, næðu sér að fullu. Ég tel

mig því vera verulega heppinn

að vera við góða heilsu nú 23

árum síðar. Í veikindum mínum

reyndust Ólafur og Helgi mér

afskaplega vel og gengu í störf

mín í fjarveru minni. Þar sannaðist

hið fornkveðna, „sá er vinur

er í raun reynist“. Þá fann ég

virkilega fyrir því hve góðir vinir

mínir þeir eru,“ segir Guðni.

„Að hætta að vinna 65 ára

- hvað tekur við? Fjölskyldan,

fyrst og fremst og svo allir okkar

góðu vinir. Við hjónin eigum

barnaláni að fagna. Við eigum

þrjú uppkomin börn, 13 barnabörn

og tvö barnabarnabörn,

eða 18 afkomendur alls sem sjá

mér fyrir nægum verkefnum það

sem eftir er. Við eigum okkar

sælureit sem er sumarhús í

Skorradal og þangað viljum við

fara eins oft og kostur er. Nú

„Löggjöfin og allt regluverk

um fjármálafyrirtæki

er í dag ótrúlega miklu

flóknari og ítarlegri en

þegar ég var að starfa á

mínum fyrstu árum sem

endurskoðandi.“

- Sveinn Jónsson.

Sveinn kom

til starfa hjá

Endurskoðun

hf. 1978 en

var áður

aðstoðarseðlabankastjóri.

verða stundirnar þar fleiri. Ég á

mér ýmis áhugamál önnur, svo

sem veiði og að spila keilu. Svo

á ég við ramman reip að draga,

þar sem ég á langt í land með að

standast hinum „nestorunum“

snúning í golfi, en nú er lag að

ráða bót á því!“

Meiri sérhæfing og flóknara

starfsumhverfi „Starfsumhverfi

endurskoðandans hefur breyst

verulega á þeim tíma sem ég

hef starfað,“ segir Ólafur. „Endurskoðunarfyrirtækin

hafa

stækkað og hafa tekist á við

meiri sérhæfingu í störfum.

Áður fyrr þurftu menn að vita

allt um alla hluti sem lutu að

þjónustunni, en nú gengur það

ekki. Það koma stundum margir

starfsmenn að stærri verkefnum

og hefur hver þeirra sérþekkingu

á sínu sviði. Sérhæfingin

er meiri og tækjabúnaður og

möguleikar manna eru núna

allt aðrir og meiri en áður var.

Starf endurskoðandans var mjög

tímabundin álagsvinna en vinnuálagið

er orðið jafnara en áður,“

segir Ólafur.

Gjörbreytt starf endurskoðenda

Sveinn er á því að starf

endurskoðandans hafi breyst

heilmikið á starfsferlinum. „Þar

ber helst að nefna fjögur atriði.

Starfsumhverfið sjálft hefur

breyst mikið. Löggjöfin og allt

regluverk um fjármálafyrirtæki

er í dag ótrúlega miklu flóknari

og ítarlegri en þegar ég var að

starfa á mínum fyrstu árum sem

endurskoðandi. Alþjóðavæðingin

hefur gert það að verkum

að fyrirtæki starfa ekki lengur

bara í einu landi, oft mörgum í

einu. Endurskoðandinn verður

að bregðast við þeirri gífurlegu

breytingu sem af því leiðir. Einn

angi af því er að samræma vinnubrögð

við kollegana í öðrum

löndum.

Önnur breyting er sú að

formleg uppbygging fyrirtækja

er orðin mjög flókin í mörgum

tilfellum. Þú sérð í fréttum að

A-hf á í B-hf sem á í C-hf sem á

í D-hf. Endurskoðandinn verður

að leggja fram vinnu til að endurskoða

samstæðureikninga á milli

þeirra og getur það verið ansi

flókið mál.

Þriðja breytingin sem minnast

má á, er sú að viðskiptasamningar

eru orðnir miklu

flóknari í öllum greinum, ekki

síst í fjármálaheiminum. Margir

kannast orðið við svokallaða

afleiðusamninga sem gera reikningsskilin

verulega flókin.

Í fjórða lagi má nefna tæknina

sem að sjálfsögðu hefur í

mörgum tilfellum hjálpað endurskoðandanum,

en skapar jafnframt

nýja áhættu. Viðskipti

gerast hraðar og eru oft pappírslaus,“

segir Sveinn.

„Eftirminnilegast úr störfum

mínum finnst mér

vera samrunarnir sem

orðið hafa á stórum fyrirtækjum

á Íslandi.“

- Ólafur Nilsson.

Ólafur var

skattrannsóknarstjóri

áður en

hann hóf

störf hjá

Endurskoðun

hf.

Kenndir við íþróttafélög Fjórmenningarnir

eru allir kenndir

við íþróttafélög, Ólafur og Helgi

við KR, Sveinn við KA og Guðni

við Val. „KR stendur sig ekki vel

um þessar mundir í Landsbankadeildinni

í knattspyrnu en við

látum ekki deigan síga þó illa

gangi. Það var alltaf gott samkomulag

hérna í vinnunni, við

KR-ingar vorum með svo mikla

yfirburði og fáir sem lögðu til

atlögu við okkur,“ segir Ólafur

sem var þekktur skíðakappi hjá

KR á sínum yngri árum.

„Þegar Valur féll í fyrsta skipti

úr úrvalsdeild niður í 1. deild í

knattspyrnu, var Sveinn Jónsson

duglegur að velta mér upp úr

því, því KA hafði vanalega ekki

úr miklu að spila. Þegar tækifærið

gafst, fullnýtti Sveinn náttúrulega

það. Fótboltarígurinn

stóð hins vegar samstarfi okkar

aldrei fyrir þrifum, við göntuðumst

eðlilega með árangur

okkar félaga þegar þannig stóð

á,“ segir Guðni.

„Það væri heldur ekkert

gaman af því ef KR ynni alltaf.

Önnur íþróttafélög myndu

hreinlega hætta ef svo færi,“

segir Helgi, en hann var lengi

leikmaður í meistaraflokki

KR og landsliðsmaður í knattspyrnu

á árunum 1955-61. Hann

spilaði einnig handbolta með

Aftureldingu og körfubolta

með ÍR. „Þetta kallar maður

nú bara lauslæti,“ segir Ólafur,

„að stunda íþróttir með þremur

félögum“!

F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 5 53

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!