29.07.2014 Views

GENGU SAMAN TIL DÓMARA Baugsmálið er umfangsmesta ...

GENGU SAMAN TIL DÓMARA Baugsmálið er umfangsmesta ...

GENGU SAMAN TIL DÓMARA Baugsmálið er umfangsmesta ...

SHOW MORE
SHOW LESS

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

KVIKMYNDIR

Terry Gilliam ásamt sviðshönnuði sínum Guy Hendrix Dyas við

tökur á Grimmsbræðrum.

Headey og Peter Stormare. Handritið skrifaði Ehren Kruger, en hann

hefur aðallega fengist við að skrifa handrit að hryllingsmyndum.

Meðal afreka hans á því sviði má nefna Scream 3, The Ring og The

Ring 2.

Ameríkumaður í London Terry Gilliam er fæddur í Minneapolis í

Bandaríkjunum 2. nóvember 1940. Í dag er hann breskur ríkisborgari

og hefur átt heima í London frá því um miðjan sjöunda áratuginn.

Hann vakti fyrst athygli sem einn að meðlimum Monthy Pythons

hópsins, en með honum þar voru Terry Jones, Michael Palin, Eric

Idle, John Cleese og Graham Chapman, allt Bretar. Hlutverk Gilliams

innan hópsins var að skrifa handrit, sjá um sviðsetningu, teikna þegar

þess þurfti, auk þess sem hann lék, þó ekki eins mikið og aðrir. Serían

Monthy Python’s Flying Cirkus hafði verið mjög vinsæl í sjónvarpinu,

en þegar þeim félögum í Monthy Python fannst sem þeir væru

búnir með sinn skammt þar, ákváðu þeir að gera kvikmyndir og

leikstýrði Gilliam ásamt Terry Jones fyrstu myndinni, Monthy Python

and the Holy Grail. Gilliam ákvað síðan að gera upp á eigin spýtur

Jabberwocky árið 1977. Hún vakti ekki mikla athygli. Með aðstoð

félaga sinna gerði hann síðan Time Bandits. Með þeirri mynd má segja

að Gilliam hafi fest sig í sessi sem frumlegur kvikmyndaleikstjóri.

Gilliam tók síðan þátt í að gera Monthy Python’s Meaning of

Life. Strax að henni lokinni hóf hann að gera Brazil, sem var verðlaunuð

í bak og fyrir. Þetta var 1985. Fjórum árum síðar leikstýrði

hann The Adventures of Baron Munchausen. Sú mynd olli nokkrum

vonbrigðum. Það sama er ekki hægt að segja um hans næstu tvær

myndir, The Fisher King og 12 Monkeys. Báðar fengu góða dóma

og mikla aðsókn og eru enn vinsælustu kvikmyndir hans. Fear and

Loathing in Las Vegas kom næst og skiptust áhorfendur yfirleitt í

tvennt gagnvart henni, sumum fannst hún vera snilld á meðan aðrir

þoldu hana ekki, ekkert þar á milli. Þess má svo geta að J.K. Rowling,

höfundur Harry Potter bókanna, vildi að Terry Gilliam leikstýrði

fyrstu Pottermyndinni. Það féll í grýttan jarðveg hjá framleiðendum

myndarinnar og fékk hún engu þar um ráðið.

Terry Gilliam er að verða 65 ára gamall og segist verða orðinn

þreyttur á slagsmálum: „Það er eins og veröldin minnki í hvert sinn

sem ég á í erjum. Terry Jones hefur sagt við mig að ég sé maður sem

vilji vera með ófrið og það haldi mér gangandi. Þessi ófriður heldur

mér að vísu vakandi, en það er varla þess virði að standa í þessu.“

BÍÓFRÉTTIR

Örlög

stríðsmyndar

Það er ekki aðeins Grimmsbræður

sem hefur fengið að rykfalla

í hillum hjá þeim Weinsteinbræðrum.

Stuttu eftir hina hörmulegu

atburði 11. september

2001 ákvað Harvey Weinstein

að hressa upp á þjóðarvitundina

með því að gera kvikmynd um

frækinn björgunarleiðangur bandarískra

hermanna í seinni heimstyrjöldinni,

þar sem einum herflokki

tókst að frelsa 500 bandaríska

fanga úr höndum Japana.

Myndin, The Great Raid, var gerð

undir leikstjórn Johns Dahl (The

Last Seduction, Rounders) og

var hún tilbúin til sýningar í lok

árs 2002. Sjálfsagt hefur Weinstein

í kjölfarið farið að kanna

markaðinn og séð að ekki var

sterkur grundvöllur fyrir kvikmynd

úr seinni heimsstyrjöldinni. Ekki

bætti Íraksstríðið úr vandanum,

stríð sem varð óvinsælla með

hverjum mánuði sem leið. Það

var síðan loks um miðjan ágústmánuð

síðastliðinn að The Great

Raid var frumsýnd og hefur hún

fengið sæmilegustu viðtökur hjá

gagnrýnendum. En samkvæmt

aðsókn liggur leið hennar fljótt á

myndbanda- og mynddiskamarkaðinn.

Kostnaður við gerð myndarinnar

var 80 milljón dollarar og

voru tekjur fyrstu vikuna aðeins

3 milljónir dollarar.

Benjamin Bratt og James

Franco í hlutverkum hermanna

í seinni heimsstyrjöldinni

í The Great Raid.

Helen Mirren er ekki á

flæðiskeri stödd hvað

varðar laun.

Helen Mirren

hæst launuð í

bresku sjónvarpi

Helen Mirren er ein virtasta

breska leikkonan og hefur henni

hlotnast margs konar heiður og

er meira að segja öðluð og má

kalla sig Dame Helen Mirr-en.

Henni hlotnaðist enn ein rós í

hnappagatið þegar ITV sjónvarpsstöðin

gerði samning við hana

um að leika í síðustu myndinni

sem gerð verður um lögregluforingjann

Jane Tennyson í Prime

Suspect, sjónvarpsseríunni.

Samtals fær Mirren 750.000

pund (86,2 milljónir króna)

fyrir myndina sem sýnd verður

í tveimur hlutum. Þetta gerir

185.000 pund fyrir hvern sýndan

klukkutíma. Sá sem átti metið

áður var David Jason, en fyrir leik

sinn sem hinn geðþekki lögreglumaður

George Frost í Touch of

Frost, hefur hann fengið 150.000

pund fyrir hvern sýndan klukkutíma.

Þess má geta að Helen

Mirren lék fyrst Jane Tennyson

árið 1991.

F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 5 75

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!