B A U G S M Á L I Ð D Ó M T E K I Ð ÁKÆRURNAR Í BAUGSMÁLINU TEXTI: JÓN G. HAUKSSON MYND: GEIR ÓLAFSSON Ákært er m.a. fyrir fjárdrátt og umboðssvik vegna meintra ólögmætra lánveitinga að upphæð 1,3 milljarðar króna og fyrir rangfærslur í bókhaldi, auk fleiri brota. Ríkislögreglustjóri gaf ákærurnar út á hendur sexmenningunum, þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Jóhannesi Jónssyni, Kristínu Jóhannesdóttur, Tryggva Jónssyni, Stefáni Hilmarssyni og Önnu Þórðardóttur, hinn 1. júlí sl. Málið var hins vegar þingfest einum og hálfum mánuði síðar, hinn 17. ágúst, í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ákærurnar flokkast í ellefu kafla eftir tegund brota og eru í fjörutíu liðum. Málsskjöl eru mikil að vexti eða 20 þúsund síður. Ákært er fyrir fjárdrátt og umboðssvik vegna ólögmætra lánveitinga að upphæð 1,3 miljarðar króna og fyrir rangfærslur í bókhaldi sem hljóða upp á hátt í 1,4 miljarða, auk fleiri brota sem snúa að lögum um hlutafélög, bókhald, tolla og skatta. Sannist sekt varða meint brot fangelsisvist og sektum. Flestar ákærurnar snúa að Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, og Tryggva Jónssyni, fyrrverandi forstjóra Baugs. Ákærurnar eru margs konar. Hér verður ekki farið nákvæmlega ofan í þær þar sem aðrir fjölmiðlar eru búnir að því. En ákærunar snáust til dæmis um: Að fjárfestingar Gaums og Fjárfars hafi verið fjármagnaðar af Baugi; Að forsvarsmenn Baugs hafi lánað um 847 milljónir af fé Baugs til sjálfra sín og fjölskyldufyrirtækja, m.a. til Gaums og Fjárfars, oft án skuldarviðurkenninga, trygginga eða samninga um endurgreiðslur; Að Baugur hafi greitt 34 reikninga vegna skemmtibáts í annarra eigu; Að Baugur hafi greitt persónulegar úttektir óviðkomandi félaginu. Alls fjalla 11 af 40 liðum ákærunnar um lán Baugs til þessara tveggja félaga. Í ákærunum kemur fram að lánin hafi verið veitt á tímabilinu frá október 1998 til maí 2001 þegar Baugur var skráður á Verðbréfaþingi Íslands og í eigu margra hluthafa. Í mjög fróðlegri og skýrri úttekt Morgunblaðsins hinn 17. ágúst á Baugsmálinu kemur fram að um helmingurinn af fyrrgreindum 847 milljóna króna lánum hafi verið gerður upp á árunum 1998 og 1999. Enn er hins vegar deilt um 95 milljónir sem færðar voru til Kaupþings og síðar til félags í eigu Gaums en sakborningar segja fjárhæðina hafa verið þóknun í tengslum við kaup í Arcadia. Önnur lán voru gerð upp á árinu 2002, fyrir og eftir húsleit lögreglunnar. Þar af voru 210 milljónir gerðar upp með víxlum sem gefnir voru út 20. maí 2002 og greiddir 5. september 2002, eða nokkrum dögum eftir húsleitina. Um 150 milljónir króna voru gerðar upp eftir húsleit lögreglunnar. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs Group, hefur sagt í fjölmiðlum í útskýringum sínum að öll viðskipti milli Gaums, eignarhaldsfélags fjölskyldunnar, og Baugs hafi verið þannig að Baugur hafi alltaf hagnast. Engu hafi verið stolið og enginn orðið fyrir tjóni af hans völdum. Þá hefur hann margoft sagt að ekkert hafi verið hlustað á eða tekið tillit til skýringa sakborninga í málinu. Bréf dómenda til ákæruvalds og verjenda í Baugsmálinu Þegar Frjáls verslun var komin í prentun bárust fréttir um a› Pétur Gu›geirsson hér›asdómari og dómsforseti í Baugsmálinu, hef›i sent saksóknara og verjendum í Baugsmálinu bréf um að annmarkar væru á ákærunum. Ger›ar eru athugasemdir vi› 18 af 40 ákæruli›um og a› annmarkarnir séu þeir a› verkna›i ákær›a sé ekki nægilega vel l‡st. Me› ö›rum a› sk‡ra þurfi betur og l‡sa meintum brotum fjögurra hinna ákær›u. Lögmenn voru á því a› þetta teldist áfall fyrir ákæruvaldi›. Bo›a› var til sérstaks þinghalds þar sem sækjandi og verjendur gætu komi› sjónarmi›um sínum a›. 26 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 5
B A U G S M Á L I Ð F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 5 27