D A G B Ó K I N A/S við sig eignarhlut upp á 3,8% og fór hlutur þess upp í 23,9% af heildarhlutafé Össurar og þar með urðu Danirnir stærsti hluthafinn. Sænska fjárfestingafélagið Industrivärden AB, sem áður hafði verið stærsti hluthafinn, svaraði fyrir sig um miðjan ágúst og fór hlutur þess þá upp í 23,35%. En Danirnir bættu þá þegar um betur, keyptu meira og lyftu eignarhlut sínum upp í 24,58%. Þannig standa mál núna. Það er þetta andrúmsloft þegar danskir og sænskir keppa. Andri Teitsson. 5. ágúst Bomba sumarsins, Andri hættir hjá KEA Þetta mál var ein af bombum sumarsins. „Andri Teitsson, framkvæmdastjóri KEA, segir starfi sínu lausu af persónulegum ástæðum og stjórn félagsins hefur fallist á uppsögn hans.“ Þetta hljómaði svo sem saklaust en þjóðfélagið „fuðraði nánast upp“ dagana á eftir þegar Andri sagði á heimasíðu KEA að hann hefði beðið um langt fæðingarorlof í samræmi við lög og reglur en að stjórnin hefði talið það óheppilegt. Það var síðan olía á eldinn þegar Benedikt Sigurðarson, formaður stjórnar KEA, sagði spurður um málið í fréttum Stöðvar 2 að fæðingarorlof væri ekki fyrir forstjóra: „Ég er þeirrar skoðunar og hef verið lengi og fyrir þennan tíma að þessi lög væru sett fyrst og fremst til að tryggja réttarstöðu almennra starfsmanna. Staða stjórnenda, sem eru á alvörulaunum og eru lykilmenn í sínum fyrirtækjum, er að mínu mati allt öðruvísi og er eðlilegt að það væri hugsanlega tekið á þeim málum með ákvæðum í starfssamningum viðkomandi,“ sagði Benedikt á Stöð 2. Og viðbrögðin létu ekki á sér standa. 5. ágúst Jón Björnsson til Magasin du Nord Það þóttu auðvitað tíðindi þegar forstjóri Haga, Jón Björnsson, var ráðinn forstjóri Magasin du Nord í Danmörku frá 1. október. Jón hefur setið þar í stjórn frá því Baugur og fleiri keyptu fyrirtækið undir lok síðasta árs. Við þessa breytingu fór „domino-spilið“ í gang hjá Högum. Finnur Árnason, forstjóri Hagkaupa, tók við sem forstjóri Haga og Gunnar Ingi Sigurðsson, rekstrarstjóri Hagkaupa, tók við Finni sem framkvæmdastjóri Hagkaupa. Gunnar hefur verið rekstrarstjóri verslana Hagkaupa frá árinu 1998. 8. ágúst Kaupa stórt land á Spáni Róbert Wessman. Hún var einhvern veginn öðruvísi fréttin um að þeir Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Actavis, og Róbert Wessman, forstjóri Actavis, væru í forsvari fyrir kaup íslenskra fjárfesta á 2 milljóna fermetra orlofshúsalandi á Spáni fyrir um 8 milljarða króna. Landið er í nágrenni Murica á suðausturströnd Spánar og áætla þeir Björgólfur og Róbert að skipuleggja þar orlofshúsabyggð fyrir vel stæða einstaklinga. Áætlað er að reisa hótel auk 2.500 íbúða og íbúðarhúsa og byggja upp golfvelli og útivistarsvæði fyrir íþróttastaði. Áætluð fjárþörf verkefnisins er um 9,5 milljarðar króna. Stofnað hefur verið hlutafélag utan um þetta verkefni og heitir það AB Capital. Burðarás á um fimmtung í félaginu á móti þeim Björgólfi Thor og Róberti. Íslandsbanki, Straumur og Landsbankinn lána fé til verkefnisins. Magnús Þorsteinsson. 9. ágúst Leiðir skilja -Magnús selur í Samson Tilkynnt var þennan dag að Magnús Þorsteinsson, viðskiptafélagi Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar í hartnær fimmtán ár, hefði selt þeim hluti sína í þremur eignarhaldsfélögum; Samson eignarhaldsfélagi ehf., Samson Global og Topaz Equities. Leiðir þeirra hafa þó ekki skilið að fullu því Magnús er ennþá annar stærsti hluthafinn í lyfjarisanum Actavis Group á eftir Björgólfi Thor. Það hefur verið áberandi undanfarin misseri að áhugi Magnúsar hefur legið í því að verða umsvifamikill á sviði flutninga. Hann er aðaleigandi Avion Group sem á nokkur flugfélög og keypti auk þess Eimskip af Burðarási sl. vor. 10. ágúst Nýr fjármálastjóri til Actavis Þennan dag var sagt frá því að Mark Keatley hefði verið ráðinn framkvæmdastjóri Actavis Group frá 1. september og taki sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Hann var áður framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Farmar SA í London, leiðandi framleiðanda á lyfjum til þriðja aðila í Evrópu. Mark hefur MBA-gráðu frá Stanford Business School. Hann er löggiltur endurskoðandi í Bretlandi og meðlimur í félagi endurskoðenda þar. 10. ágúst Bjarni í Brauðbæ selur Nýir eigendur eru komnir að Hótel Óðinsvé og Brauðbæ, en þar hafa feðginin Bjarni Árnason og Þóra Bjarnadóttir ráðið ríkjum undanfarin ár. Það er Þórstorg ehf. sem kaupir af þeim feðginum. Þórstorg er í eigu Lindu Jóhannsdóttur, Ellerts Finnbogasonar, félags í eigu Birgis Sigfússonar, Jóhanns Gunnarssonar og fjárfestingafélagsins Gamma ehf. Ellert er hótelstjóri. Bjarni Árnason hóf rekstur smurbrauðsstofunnar Brauðbæjar árið 1964. 34 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 5
Útsölustaðir: Hagkaup Kringlan Hagkaup Smáralind Bjarg Akranesi Jón og Gunna Ísafirði JMJ Akureyri Skagfirðingabúð Sauðárkróki Lækurinn Neskaupsstað