Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
21

áhersla á að félags- og heilbrigðislegir þættir þjónustunnar séu samhæfðir og skipulagðir á

þann hátt að velferð og þarfir notenda séu hafðar að leiðarljósi (Lög um málefni aldraðra nr.

125/1999).

Nokkuð er til af fræðilegu efni um heimaþjónustu. Í rannsókn Sólborgar

Sumarliðadóttur og Kristínar Björnsdóttur (2011) er fjallað um reynslu eldri borgara sem búa

við dvínandi færni til sjálfsumönnunar og búsetu á eigin heimili. Viðtöl voru tekin við átta

aldraða einstaklinga sem bjuggu á eigin heimili en biðu eftir hjúkrunarrými. Viðtölin voru

túlkuð og greind með það að leiðarljósi að kanna aðstæður sem þeir bjuggu við og þá aðstoð

sem þeir nutu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að flestum þátttakendum leið vel á

heimili sínu og vildu búa þar sem lengst. Aðstoð sveitarfélagsins, fjölskyldu og góðar

aðstæður á heimili voru forsenda fyrir áframhaldandi búsetu á eigin heimili. Hluti þátttakenda

bjuggu í þjónustuíbúð á vegum síns sveitarfélags og lýstu þeir mikilli ánægju með það

búsetuúrræði, sérstaklega í tengslum við öryggi. Helsta ástæðan fyrir að flutningur á

hjúkrunarheimili kom til greina var öryggisleysi vegna versnandi heilsufars.

Í Svíþjóð var gerð rannsókn þar sem borin voru saman gæði heimaþjónustu og

þjónustu á hjúkrunarheimilum. Rannsóknin var þversniðsrannsókn þar sem spurningalisti var

lagður fyrir notendur og aðstandendur á tveimur öldrunarstofnunum. Öldrunarstofnanirnar sáu

um velferðarmál aldraðra sem bjuggu á eigin heimilum, í þjónustuíbúðum og dvalar- og

hjúkrunarrýmum. Notendur þessara þjónustuúrræða töldu viðmót starfsfólks vera það atriði

sem mestu skipti í þjónustunni. Rannsóknin sýndi fram á að almennt var fólk á

hjúkrunarheimilum ánægðara með þá þjónustu sem þeir fengu en þeir sem nýttu sér

heimaþjónustu (Hasson og Arnetz, 2011).

Rannsókn Karlsson o.fl. (2013) var kynnt fyrr í kaflanum. Rannsökuð var ánægja og

óánægja með heimaþjónustu, heimahjúkrun og endurhæfingu út frá heilbrigði þátttakenda,

sem allir höfðu náð 65 ára aldri. Það sem einstaklingar voru ánægðastir með í þjónustunni