You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
1882, einkanlega í samanburði við Gísla Súrssonar sögu, Árbók Fornleifafélagsins,

1883).

– Skammfótarmýri í Haukadal: …Í Gísla sögu eru nefndir fjórir bæir frammi í

dalnum. Segir sagan að einn þeirra hafi farið af skriðu, sem huldi hann algjörlega. Sá

bær hét Skammfótarmýri. Nafnið Skammfótarmýri er nú ekki til, en innan árinnar,

móts við Kolturshorn, er engi kallað Skammfótarengi. Er talið, að Skammfótarmýri

hafi verið upp af því, en þar eru miklar skriður (Árbók FÍ, 1951).

– Skammfótarmýri í Haukadal: …Enn utar í dalnum sömu megin árinnar, á móts

við minni Lambadal er til örnefnið Skammfótarengi og þar er talið að

Skammfótarmýri hafi verið. Þar sjást engar rústir því hrunið hefur úr fjallinu og ná

grjótskriður langt fram í dalinn (Guðmundur J. Guðmundsson, Á slóðum Gísla

Súrssonar, Áfangar (38), 1990).

– Annmarkastaðir í Haukadal: …Það er lítil ástæða til að ætla, eins og sumir hafa

haldið, að Skammtóftarmýri hafi verið rétt fyrir heiman Annmarkastaði að

vestanverðu, þar sem nú eru kölluð Jarðföll, því þar sést ekki hið minnsta fyrir að bær

hafi nokkurn tíma verið, og ekki glöggvari merki til jarðfalla en í hinni skriðunni hjá

Skammfótarengi, sem ég áður nefndi, enda er dalurinn allur fullur af skriðum beggja

megin, og hvergi neitt sérlega einkennilegt jarðfall fremur en á öðrum stað. (Sigurður

Vigfússon, Rannsókn um Vestfirði 1882, einkanlega í samanburði við Gísla Súrssonar

sögu, Árbók Fornleifafélagsins, 1883).

– Meðaldalur: …Engjarnar eru svo að kalla eyðilagðar af skriðum og grjótburði úr

Meðaldalsá. (Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns, Dýrafjarðarhreppur

1710).

– Gata í Meðaldal: …Kostir og ókostir sem segir á heimajörðinni, nema vatnsbólið

er erfitt á vetur fyrir fannlögum í Meðaldalsá. (Jarðabók Árna Magnússonar og Páls

Vídalíns, Dýrafjarðarhreppur 1710).

– Þingeyri: …Inn frá eyrinni eru bakkar og liggur hlíðarhallinn niður á þá. Inn eftir

þeim liggur önnur aðalgata kauptúnsins, og er vegurinn inn í fjörðinn framhald

hennar. Mikil byggð er með þeirri götu. Nær hún inn fyrir land kauptúnsins, og eru

nokkur húsin í Hvammslandi. Innst eru húsin strjálli, og eru stórir ræktarblettir

kringum sum þeirra. Nokkur hús standa einnig uppi í hlíðinni, fyrir ofan götuna.

Aurskriður hafa stundum fallið úr hlíðinni og þá spillt görðum og túnblettum, en

sjaldgæft er það (Árbók FÍ, 1951).

– Hólar í Kirkjubólsdal: …Úthagar eru mjög skriðurunnir og þar með litlir.

(Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns, Dýrafjarðarhreppur 1710).

– Kirkjuból í Kirkjubólsdal: …Túnið hefur spilst stórlega af skriðum, og er af því

að vísu eyðilagður fjórði partur, og er þó sýnilegast að þar muni ennþá áaukast.

Engjarnar þær sem venjulega hafa slegnar verið eru að mestu eyðilagðar fyrir skriðum,

og er síðan slegið fram á Kirkjubólsdal í úthögum, sem þó er mjög langt til að sækja.

Úthagar eru bjarglegir, þó að fjallið sé víða skriðurunnið og vindblásið. …Vatnsbólið

það sem verið hefur er yfirfallið af einni skriðu, og er síðan stórlega erfiður vatnsvegur

í Kirkjubólsá, strax þegar aðskerpir á vetur. Ekki sýnist bænum óhætt fyrir skriðum,

38