Skólaskýrsla 1995 - Verzlunarskóli Ãslands
Skólaskýrsla 1995 - Verzlunarskóli Ãslands
Skólaskýrsla 1995 - Verzlunarskóli Ãslands
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Slit lærdómsdeildar og

verslunarmenntadeildar 1996

Varaformaður Verzlunarráðs Íslands, Einar Benediktsson, varaformaður skólanefndar,

Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, kennarar, nemendur og aðrir góðir gestir!

Ég býð ykkur öll hjartanlega velkomin til þessarar hátíðarstundar, þegar Verzlunarskóla

Íslands verður slitið að loknu 91. starfsári sínu við brautskráningu stúdenta og

verslunarmenntafólks.

Ég býð foreldra og aðra aðstandendur nemenda sérstaklega velkomna hingað.

Brautskráning er sameiginleg gleði- og hátíðarstund nemenda jafnt sem kennara þeirra og

foreldra.

Við sem störfum við skóla bíðum alltaf með talsverðri eftirvæntingu eftir niðurstöðum

prófa, einkum þegar jafnmikið er í húfi og brautskráning. Það stafar e.t.v. að einhverju leyti

af því að úrslit prófanna má líta á sem mælikvarða á árangur skólans sjálfs rétt eins og

nemenda, en einnig og ekki síður vegna þess að eftir svo langa samveru þá eru margir

nemenda orðnir okkur svo nátengdir að við viljum gjarnan sjá þá ná góðri fótfestu á þeirri

braut sem við vitum að hugur þeirra stendur til að feta sig eftir. Við skiljum því vel foreldra

og ástvini sem fylgst hafa með próflestri barnanna af nokkrum kvíða og eftirvæntingu. Biðin

er jafnan erfiðust þegar ekkert er hægt að gera annað en bíða og vona. Það er því eðlilegt að

skólastjóra langi til að kveðja nemendur sína með nokkrum orðum, og það mun hann gera, en

fyrst verður gerð grein fyrir úrslitum prófa.

Í 5. bekk gengu 168 nemendur til prófs. Af þeim hafa 151 lokið prófum, 6 hafa fallið, 4

eiga kost á að endurtaka próf og reyna þannig að ná upp í 6. bekk næsta vetur og 7 eiga enn

ólokið fáeinum prófum. Það er því fyrirsjáanlegt að nokkuð fækkar í 6. bekk næsta vetur.

Í 6. bekk gengu 166 nemendur undir stúdentspróf og hafa 158 þeirra lokið prófum og

munu verða brautskráðir nú. Af þessum 158 stúdentsefnum koma 114 af hagfræðibraut, 21 af

málabraut og 23 af stærðfræðibraut.

Af verslunarmenntabraut verða nú 25 nemendur brautskráðir. Af þeim ljúka 8 einnig

stúdentsprófi úr Öldungadeild til viðbótar verslunarmenntaprófi sínu og verða brautskráðir

héðan með tvenns konar prófskírteini.

Úr Öldungadeild útskrifast nú alls 22 stúdentar til viðbótar við þá 8 úr

Verslunarmenntadeildinni sem áður er getið.

Tveir nemendur hafa lokið stúdentsprófi utanskóla og fá skírteini sín afhent nú. Annar

af stærðfræðibraut en hinn af hagfræðibraut.

Alls telur útskriftarhópurinn því 207 að þessu sinni og verður það að teljast vænn

hópur.

Kæru 6. bekkingar!

Fyrir fjórum árum var ég að taka á móti umsóknum ykkar um inngöngu í 3ja bekk

Verzlunarskólans. Umsóknir voru fleiri en þær höfðu nokkru sinni verið í minni skólastjóra

tíð. Eitthundrað nemendum varð að vísa frá. Enginn var tekinn inn í fyrstu umferð sem hafði

meðaleinkunn undir 7 í samræmdum greinum.

Gleði mín yfir þessari aðsókn entist til hausts og þá féll ég í þá freistni að minnast á það

í skólasetningarræðu minni hve gáfuð þið væruð. Ekki veit ég hvort það var þess vegna en

svo mikið er víst að veturinn var ekki fyrr byrjaður en fyrstu nemendurnir komu upp á

skrifstofu mína til þess að segja sig úr skóla. Síðan dundi hvert áfallið eftir annað á skólanum

159