You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
ÍS-204:035 álagablettur 6552.304N 2232.990V

Álagablettur er í túni rétt innan (norðan) við rétt

026 samkvæmt Hrólfi Aðalsteini Valdimarssyni.

Bletturinn hafði þau álög á sér að ef hann væri

sleginn myndi eitthvað slæmt henda kindurnar á

bænum.

Á þessu svæði í túninu verður nokkur breyting á

gróðurfari þar sem það breytist úr grasi í lyng.

Enginn sérstakur blettur sker sig úr umhverfinu á

þessu svæði með því að bera þess merki að hafa

ekki verið sleginn. Líklegt er að bletturinn hafi

verið á grasivöxnu svæði þegar túnið var enn

slegið, fyrst ekki mátti slá hann, en mögulegt er að

í seinni tíð hafi lyng breitt úr sér og m.a. hulið

blettinn.

Hættumat: engin hætta

ÍS-204:035 – Svæðið sem álagbletturinn hefur að öllum

líkindum verið á, horft í suðvestur.

ÍS-204:036 náma mógrafir 6552.388N 2232.944V

Mógrafir eru um 70 m norðvestur af bæjarhól 001,

í túnjaðri. Grafirnar eru nefndar í örnefnaskrá frá

1989, þó einungis með einu orði: „mógrafir“ en

síðan merktar inn á örnefnakort sem fylgir

örnefnaskránni.

Mógrafirnar eru í mýri innan túns og rennur lækur

í gegnum svæðið.

Grafirnar eru merktar inn á örnefnakorti Hrólfs

Valdimarssonar og það sést enn móta fyrir þeim

þó erfitt sé að skilgreina mörk þeirra þar sem þær

eru nú grónar og ógreinilegar. Mest er um 1 m

niður á botn grafanna af jafnsléttu á túninu.

Gróflega áætlað eru mógrafirnar um 20x30 m á

stærð. Um 5 m neðar (vestar) í túninu, við

túngarðinn er um 20x7 m stór mógröf, næstum

ferhyrnd. Hún teygir sig út fyrir túngarðinn. Þessi

mógröf er aðeins dýpri en sú fyrrnefnda. Báðar

mógrafirnar snúa norðnorðaustur-suðsuðvestur, en saman snúa þær nær vestnorðvestri-austsuðaustri.

Hættumat: engin hætta

Heimildir:Ö-Vatnsfjarðarsel (1989), 3; Örnefnakort Hrólfs Valdimarssonar.

ÍS-204:037 tóft fjárhús 6552.346N 2232.827V

Um 40 m aftan (austan) við bæjarhól 001, eru

fjárhústóftir.

Fjárhúsin eru á tiltölulega sléttum bletti í túninu,

grónum grasi. Nokkru suðvestar er bæjarlækurinn og

annar lækur nokkru austan við þau.

Húsin virðast nú eitt stórt hólf en hafa mögulega skipst

upp í hólfá meðan þau voru í notkun. Þrír garðar skipta

húsunum upp. Húsin eru um 14,5x12 m að stærð. Að

innanmáli er þau um 10x12 m og eru veggir mest um

1,5 m breiðir og um 1,7 m háir. Húsin snúa norðaustursuðvestur

og eru opin til norðvesturs þar sem líklega

hefur verið timburþil. Veggir tóftarinnar eru heilir

nema að á bakhliðinni (suðaustur) þar sem 1 m háir

pallar eru hvor í sínu horninu. Sá syðri um 1 m breiður

og sá nyrðri um 1,5 m breiður, báðir um 1 m á dýpt.

Mögulegt er að þetta hafi verið inngangar eða lúgur eða

eitthvað þess háttar. Veggurinn til suðausturs hefur

ÍS-204:036 – Mógrafir, horft í norður.

ÍS-204:037 – Fjárhústóft (tóft 038 framan við hana),

horft í suðaustur.

232