Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
æjarhólinn gamla stóðu áður 3 útihús, í 100 metra í nv frá núverandi íbúðarhúsi. Ekki sést móta fyrir þessum

húsum fyrir utan það nyrsta sem er rúst af fjárhúsi. Nr. 29 er nyrst. Hleðslur standa enn sums staðar og hefur

húsið einnig einhvertímann verið að hluta til

steypt“. Samkvæmt bæjarteikningu danskra

landmælingamanna frá 1913 og Ólafíu

Salvarsdóttur var húsið fjós. Það var í miðið af

þeim þremur útihúsum sem teiknuð eru á

túnakorti frá því um 1920 norðan við Gamla hús

001A. Tóft 028 er sunnan við, en norðan við það,

hinum megin við læknin sem nú liggur í skurði er

sjást enn tóftir af þriðja húsinu (sjá 051). Tóft

fjóssins er um 30 m norður af bæjarhól 001, við

norðurenda tóftar 028.

Tóftin er í jaðri þess hluta túnsins sem sleginn er

norður af bæjarhólnum. Svæið er mjög gróið, rétt

austan við skurðinn sem bæjarlækurinn rennur í.

Tóftin er 11,5x9,5 m stór, snýr norður-suður og

eru veggir hennar mest um 2 m háir. Við

ÍS-205:029 – Vestara hólfið í tóft 029, horft í vestur.

austurhluta tóftarinnar, sunnarlega, var steypt hús,

um 4x7 m að stærð (sem ekki er talið með í stærð

tóftar). Veggir þess húss standa enn að hluta, sérstaklega til vesturs þar sem veggir eru enn um 2 m háir. Tóftin

sjálf skiptist í tvö hólf. Það eystra er stærra og snýr norður-suður en það vestara snýr austur-vestur. Vestara

hólfið var hlaða. Það er um 2,5x4 m að innanmáli og standa veggir þess nokkuð vel þó farið sé að hrynja úr

þeim á stöku stað. Eystra hólfið var fjósið sjálft og er það um7,5x3,5 m að innanmáli. Í norðvesturhorn þess er

lítill kofi, um 2x2 m að stærð, sem börn hafa notað sem bú á seinni hluta 20. aldar. Veggir kofans standa veggir

enn vel og sést að hlaðið hefur verið steinum og torfþökum til skiptis. Steypta viðbyggingin er sunnarlega á

austurlangvegg fjóssins. Innan í fjósinu eru steypuleifar og bárujárnsdrasl við steypta vegginn. Op er á milli

tófta 028 og 029 er á sameiginlegum vegg en einnig dyr verið norðan við steypta vegginn. Op hefur verið á milli

fjóss og hlöðuna á sameiginlegum vegg.

Hættumat: engin hætta

Heimildir:Ö-Vatnsfjörður (ÞG) bls. 6; Túnakort (ártal vantar); RE, 13; Bæjarteikning frá 1913.

ÍS-205:030 heimild um hjall 6556.388N 2229.881V

Í Fornleifaskráningu Ragnars Edvardssonar frá 2003 segir : „Á túnakorti er teiknað lítið útihús sunnan við

bæjarhólinn. Grösugur hóll í u.þ.b. 25 metra beint vestur af kirkjugarðinum, 40 metra nv af kirkjunni. Lítill

grösugur hóll“. Húsið sem merkt er inn á túnakortið frá því um 1920 var um 35 m norðnorðvestur af núverandi

kirkju. Húsið var hjallur samkvæmt Ólafíu Salvarsdóttur en geymsluhús samkvæmt bæjarteikningu danskra

landmælingamanna frá 1913.

Líklega hefur hjallurinn verið þar sem nú er ósleginn blettur í túninu, vestan kirkjugarðs. Vestan við blettinn er

skurður sem bæjarlækurinn rennurr í. Bletturinn er aðeins hærri en umhverfið en þó frekar sléttur.

Engar leifar hússins sjást lengur en gróðurfar og spýtnarusl gæti gefið vísbendingu um staðsetningu þess, sem og

staðsetning á túnakorti. Hjallurinn var rifinn á seinni hluta 20. aldar.

Hættumat: hætta, vegna ábúðar

Heimildir:Túnakort (ártal vantar); Bæjarteikning 1913: RE, 13.

ÍS-205:031 Geithús tóft fjárhús 6556.348N 2229.902V

Í Fornleifaskráning Ragnars Edvardssonar frá 2003

segir: „Á túnakorti er teiknað útihús syðst alveg við

túngarðinn. Húsið stóð á grösugum hól í u.þ.b. 60

metra frá timburkirkjunni [s.s. núverandi kirkju]. Hár

grösugur hóll“. Í örnefnaskrá Þorkels Guðmundssonar

segir: „Upp af mýrinni Fríðu heitir Ból, en nokkru ofar

er kölluð Geithúsmýri, örskammt framan við

túngarðinn, út undan fjárhúsi því innangarðs, sem nefnt

er Geithús“. Tóft Geithúsa, er merkt voru inn á

túnakort frá um 1920, er um 120 m suðsuðvestur af

bæjarhól 001 og um 50 m vestur af núverandi kirkju

025.

Tóftin er á háum, mjög grónum hól. Hún er á kafi í

grasi, puntur og sóleyjum sem gerir það að verkum að ÍS-205:031 – Tekið ofan á Geithúshól, horft í suður.

252