You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
alla brún hólsins og var tekinn prufuskurður í rofabarðið til að athuga dýpt mannvistarlaga þar sumarið 2010 og

kom í ljós að dýpt þeirra er yfir 1,5 m (ekki var farið dýpra

en það). Við vestsuðvesturhorn bæjarhólsins er kálgarður

008 og að suðvestan, um 2 m frá bæjarhúsunum er lítið

brunnhús 010 við lækjarsprænu sem þar rennur. Bæjarhúsin

eru öll grafin ofan í hólinn að einhverju leyti og því renna

veggir oft saman og út í bæjarhólinn. Á teikningu eru húsin

sýnd aðskilin hús en í raun falla þau öll saman og verða

eins og að einni heild. Í bæjarþyrpingunni eru sex hólf auk

tveggja mannvirkja sem sem líklegast tilheyra hólfi A (A1

og A2). Hólf A er suðvestast og hefur líklega verið fjárhús

því þar inni er garði. Hólfið snýr norðvestur-suðaustur og

eru dyr á því til norðvesturs. Hólfið er um 5x3 m að

innanmáli og er garðinn í miðjunni langsum. Við enda

ÍS-208:001 – Bæjarhóllinn aftanfrá, horft til

norðvesturs, Miðhús ofarlega fyrir miðri mynd.

hans er op út í gegnum bakvegginn. Þar fyrir aftan er hólf

A2 sem líklega var heygryfja. Hólfið er 2x2,5 m að stærð

og um 1,5 m djúpt. Það er illa farin af uppblæstri. Hólf A1

er suðaustur af hólfi A (s.s við hliðina á því) og samnýtir suðvesturvegg A. Óljóst er hvaða tilgangi það hólfið

hefur gegnt, en

það er um 3x2 m að innanmáli og snýr norðvestur-suðaustur. Veggir þess eru frekar ógreinilegir með mjóum

veggjum. Hólf B er norðaustur af A. Það er um 4,5x2 m að innanmáli og snýr suðvestur-norðaustur og mjór

stallur, um 30 cm breiður, er í því við suðausturvegg allan. Áþekkt hólf, D, er norðaustur af hólfi B. Það er um

2x5,5 m að innanmáli og snýr einnig norðaustur-suðvestur og er með svipaðan stall, um 30 cm breiðan, við

suðausturvegg allan. Stallar þessir hafa óljósan tilgang, en

ólíklegt er að um leifar af jötum sé að ræða þar sem Ari

Sigurjónsson taldi þessi rými hafa gegnt hlutverkum

skemmu og þess háttar. Ekki er þó hægt að útiloka að um

jötuleifar sé að ræða. Aftan (suðaustan) við þessi hólf (B

og D) er hólf C, sem samkvæmt Ara Sigurjónssyni var

fjósbaðstofa þar sem beljurnar voru hafðar í undir

baðstofugólfi. Hólfið er djúpt og nokkuð niðurgrafið. Það

er 3x3 m að stærð og þar er greinilegur veggur mest um 2

m breiður. Nokkurt rof hefur myndast ofanvert við

suðvesturvegg hólfs C. Göng hafa verið á milli hólfa B/D

og C, en þau eru að miklu leyti fallin saman. Norðaustan

við hólf D er hólf E. Það er um 1x5 m að innanmáli og

snýr norðvestur-suðaustur. Aftan (austan) við það er hólf

F sem er lítið, um 1x1 m að stærð og ógreinilegt. Veggir í

tóftinni eru mest um 2 m breiðir og 2 m háir. Húsin eru

ÍS-208:001 – Fjárhúsið (A) við bæjarhúsin, horft

til suðausturs.

hlaðin úr torfi og grjóti en steypt hefur verið þunnt lag ofan á garða í rými A. Hleðslur í veggjum eru víða

heillegar er sums staðar farnar að láta á sjá.

Hættumat: engin hætta

Heimildir:Túnakort (ártal vantar).

ÍS-208:002 tóft fjárhús 6555.004N 2228.752V

Fjárhústóft er um 85 m suður af bæjarhól 001, á milli hans

og hesthúss 003. Húsið er merkt inn á túnakort frá því um

1920. Eitt sinn var húsið aðeins eitt fjárhús og heygarður

auk lítils kofa, Knútskofa, sem var áfastur heygarðinum.

Seinna var fjárhús 009 flutt að þessu fjárhúsi og hlaða

byggð við, beint ofan á heygarðinn og kofann, og úr varð

húsið sem tóftirnar standa af í dag.

Tóftin eru í sléttu, smáþýfðu, óslegnu túni, grónu grasi.

Sunnan og austan við hana er klettahjalli en vestur af er

aflíðandi halli til vesturs. Tún er allt í kring um tóftina og

bæjarhóllinn er til norðurs frá henni.

Fjárhústóftin er samtals um 12,5x10,5 m að stærð og snýr

norðaustur-suðvestur. Tóftin skiptist í þrjú hólf: tvö

fjárhús og hlöðu að baki sem snýr þvert á húsin. Fjárhúsin

eru hlið við hlið og snúa bæði norðvestur-suðaustur. Dyr

ÍS-208:002 – Fjárhúsið, horft til norðvesturs.

290