Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
ÍS-205:021 hleðsla refagildra 6556.092N 2230.467V

Refagildra er rúma 100 m suðvestur af Bræðravörðum 013.

Gildran er á grjótholti á Grettishjalla sem gróið er lyngi og

mosa.

Hleðslan virðist í fyrstu vera varða en þegar betur er að gáð er

gat í gegnum hana miðja, neðst. Gatið er um 15-20 cm breitt og

nær alveg í gegnum hleðsluna. Annað gat er einnig í henni ofar,

en einungis í suðurenda. Hleðslan er um 1,5x1,5 m að grunnfleti

og um 1 m á hæð. Fjögur til fimm umför af hleðslu sjást.

Nokkuð er hrunið úr gildrunni og er grunnflötur hennar því

líklega stærri í dag en hann var upphaflega.

Hættumat: engin hætta

ÍS-205:021 – Refagildra, horft í austur.

ÍS-205:022 varða óþekkt 6555.798N 2229.869V

Varða er rúmlega 1 km suður af bæjarhól 001, um 70 m

vestan við núverandi veg.

Varðan er á miðju grjótholti sem vaxið er lyngi og mosa.

Austan við vörðuna er þjóðvegurinn en vestan hennar holt

og hæðir.

Varðan er um 1 m í þvermál og um 1,4 m á hæð. Hún er

farin að skekkjast og eitthvað virðist nú þegar hafa hrunið

úr henni. Varðan er að mestu hlaðin úr hellum og er gróin

fléttum. Stór steinn er efst ofan á henni. Ekki er vitað í

hvaða tilgangi varðan var hlaðin.

Hættumat: engin hætta

ÍS-205:022 – Varða, núverandi þjóðvegur í

baksýn, horft í austur.

ÍS-205:023 tóftaþyrping verbúð 6557.922N 2231.479V

Í Jarðabók Árna Magnússonar

og Páls Vídalín frá 1702-1714

segir: „Heimræði er ekkert á

sjálfum staðnum í margt ár,

því fiskur gengur allsjaldan so

lángt inn á fjörðinn að hjeðan

verði róið að heiman, og

brúkast hjeðan verstaða í

Vatnsfjarðarnesi á haust og

stundum á vor þegar fiskur

hefur gengið, og er þar

lendíng góð“. Tóftir

verstöðvar eru í Selvík á

landamerkjum Vatnsfjarðar og

Skálavíkur, að mestu

Skálavíkurmegin, um 100 m

norðan vegarins gamla á

Vatnsfjarðarnesi, um 3,1 km

norðnorðvestur af bæjarhól

001.

Tóftirnar eru í Selvík, skammt

ofan við fjöru. Þar sem ÍS-205:023 – Minjasvæðið í Selvík, þúst A greinanleg nær, rústir B og C

tóftirnar eru í Selvík er víkin greinanlegar ofan við miðja mynd, horft í suðsuðvestur.

frekar lá, í aflíðandi halla. Þar

er lítið af stóru grjóti, en það eykst eftir því sem utar (norðar/norðaustar) dregur. Fjaran er smágrýtt en vestar eru

247