You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
ÍS-205:056 heimild um kálgarð 6556.475N 2230.036V

Inn á túnakort frá því um 1920 eru merktir tveir kálgarðar vestan við tún, þessi og kálgarður 027. Samkvæmt

túnakortinu eru þeir um 200 m norðvestur af bæjarhól 001, en staðsetning kálgarða utan túns virðist vera

ónákvæm (sbr. ónákvæmni á túnakorti í Sveinhúsum (206)) og því er ekki hægt að treysta staðsetningu þeirra.

Ólafía Salvarsdóttir, heimildamaður, kannaðist ekki við garðana og líklegt er að þeir séu fyrir löngu fallnir úr

notkun og horfnir. Gengið var um svæðið þar em kálgarðarnir hafa mögulega verið samkvæmt túnakortinu, á

holtinu upp af túngarði 032. Svæðið er mjög blautt og stórþýft en á einum stað virðist svæðið örlítið sléttara og

er mögulegt að þar leynist leifar kálgarðsins þó að erfitt sé um það að fullyrða.

Hættumat: engin hætta

Heimildir:Túnakort (ártal vantar).

ÍS-205:057 heimild um heygryfja 6556.440N 2229.935V

Inn á túnakort frá því um 1920 er merkt votheysgryfja rétt sunnan við hesthús 038, norðvestarlega í túni, um 85

m norðnorðvestur af bæjarhól 001.

Túnið er á þessu svæði þýft og mjög gróið.

Ekkert sést til gryfjunnar sunnan við tóft 038. Ólafía Salvarsdóttir, heimildamaður, man ekki heldur eftir henni

og líklegast er fyrir löngu búið að fylla upp í hana þegar hún fór að muna eftir sér.

Hættumat: engin hætta

Heimildir:Túnakort (ártal vantar).

ÍS-205:058 tóft skemma 6556.454N 2229.837V

Tóft er um 80 m norðnorðaustur af bæjarhól 001 og

um 13 m suður af víkingaaldarskála 041, sem grafinn

hefur verið upp. Rétt norðvestan við hana eru nú

(2010) lágir útsýnispallar.

Tóftin er í sléttuðu túni rétt norðaustur af bæjarhólnum

001 og norður af núverandi (2010) íbúðarhúsi. Túnið

er gróið grasi og er í svolitlum halla. Tóftin er gróin

grasi og mosa.

Tóftin er hringlaga, en þó fremur óregluleg. Hún er um

5,5 x 5 m að stærð. Veggir tóftarinnar eru mest um 2 m

breiðir (þó yfirleitt aðeins mjórri) og veggjahæð er

mest um 0,5 m. Að innanmáli er tóftin um 2,5x2 m.

Dyr eru á tóftinni til suðausturs, rétt tæplega 1 m á

breidd.

ÍS-205:058 – Skemmutóftin, horft til norðurs.

Hellulögð

stétt er í

dyrunum og nær hún rúmlega 1 m inn fyrir þær, inn í húsið, nokkurn

vegin inn á mitt gólf. Einn stór steinn er í vegg að norðanverðu að

innan og annar á horni. Einhvers konar rás eða vik er í veggnum mót

austri, um 1 m norðan við dyrnar. Það nær alveg í gegnum veggin en

tilgangur er óljós. Tóftin er hlaðin úr torfi. Uppgröftur fór fram á

tóftinni á árunum 2006-2007 og leiddi hann í ljós að tóftin er að öllum

líkindum frá víkingaöld og að líklegast er um einhverskonar skemmu

eða þess háttar. Að loknum uppgreftri var tóftin tyrfð og undir torfið

sett auka torflag ofan á veggi til að hækka þá. Frekari upplýsingar um

tóftina og uppgröft hennar er að finna í skýrslum Fornleifastofnunar

Íslands frá 2006-2007: FS356-03096 (2006) og FS383-03097 (2007).

Hættumat: engin hætta

Heimildir:Framvinduskýrslur- Vatnsfjörður: FS356-03096 (2006) og

FS383-03097 (2007).

ÍS-205:058

ÍS-205:059 tóft skemma 6556.458N 2229.835V

Tóft er um 90 m norðnorðaustur af bæjarhól 001 og um 1,5 m norður af tóft 058.

Tóftin er í sléttuðu, grasivöxnu túni í aflíðandi halla. Tóftin er gróin grasi og mosa.

Tóftin er um 4,5x5,5 m að utanmáli og um 4,5x2 m að innanmáli. Hún er ferköntuð og snýr austur-vestur. Tóftin

264