You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Þjálfun barna og unglinga í knattspyrnu.

Fylgiskjal 1

Bréf til þjálfara

Komið þið sælir félagar

Við könnumst nú við flesta ykkar og höfum eflaust att kappi oftar en

einu sinni. Þannig er mál með vexti að við erum að vinna að gerð

lokaverkefnis okkar við KHÍ, en þaðan stefnum við á að útskrifast í vor.

Lokaverkefnið okkar snýr að þjálfun barna og unglinga í knattspyrnu og

vantar okkur smá upplýsingar frá ykkur varðandi flokkana ykkar og ykkur

sjálfa. Þetta eru kannski ekki miklar upplýsingar en það myndi hjálpa okkur

mikið ef þið gætuð tekið smá tíma í að svara þessum spurningum fyrir okkur

samviskusamlega og sent okkur til baka. Þessar upplýsingar verða

trúnaðarmál og ekki verður hægt að bendla þær við þig né þitt félag. Við

vonumst til þess að þið takið þessu ekki illa og ef einhverjar spurningar vakna

hjá ykkur þá skulið þið endilega hafa samband við okkur.

Með von um jákvæð og skjót viðbrögð.

Kveðja,

Ingvi Sveinsson (869-8228) og Eysteinn Pétur Lárusson (861-9811)

Þetta bréf er sent á alla aðalþjálfara í 4.fl. og 5.fl. karla í knattspyrnu sem þjálfa hjá liðum á

höfuðborgarsvæðinu.

Eysteinn Pétur Lárusson og Ingvi Sveinsson

104