You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Þjálfun barna og unglinga í knattspyrnu.

Æfing 4 - „Sendingarleiðir“

• Útskýring á æfingunni:

6 keilum er raðað upp þannig að þær myndi ákveðnar sendingarleiðir. Einn

leikmaður er á hverri keilu nema á keilunum sem eru á endunum, en þar

mega koma tveir leikmenn eða fleiri. Boltinn er sendur þá leið sem sýnd er á

skýringarmyndinni. Leikmenn eiga helst að taka eina snertingu á boltann,

senda hann og fara svo á þann stað sem þeir gáfu á (elta boltann) og svo koll

af kolli. Nota má tvo eða þrjá bolta svo leikmenn séu stanslaust að.

• Fleiri útgáfur:

Hægt er að breyta sendingarleiðum eins og maður vill. Einnig er hægt að

bæta við fleiri stöðum (keilum) og þar með leikmönnum.

• Helstu áhersluatriði:

Vanda sendingar og móttöku. Vera búinn að ákveða hvert á að senda áður en

maður fær boltann (yfirsýn). Nota helst eina snertingu.

Þjálfa bæði hægri og vinstri fótinn.

• Skýringarmynd:

Eysteinn Pétur Lárusson og Ingvi Sveinsson

62