Ãrsskýrsla 2007 - BTB
Ãrsskýrsla 2007 - BTB
Ãrsskýrsla 2007 - BTB
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Ársskýrsla 2007

98

Innri endurskoðun bankasamstæðunnar þjónar sem sjálfstæður og óháður eftirlitsaðili

og ráðgjafi. Hlutverk innri endurskoðunar er að hafa eftirlit með starfsemi

bankans og koma með tillögur að úrbótum. Kerfisbundið og reglulegt mat

innri endurskoðunar gerir Landsbankanum kleift að auka skilvirkni áhættustýringar,

eftirlits og stjórnarhátta og færir bankann þannig nær markmiðum sínum.

Bankaráð skipar innri endurskoðanda og heyrir hann beint undir bankaráð samkvæmt

sérstöku erindisbréfi, í samræmi við lög um fjármálafyrirtæki og samþykktir

Landsbankans. Innri endurskoðandi fer með innri endurskoðun Landsbankans

í samræmi við viðurkenndar innri endurskoðunarreglur og viðmið. Hluti

af skyldum innri endurskoðanda er að ráðleggja bankaráði á sviði endurskoðunar,

innra eftirlits, áhættustýringar og –skuldbindinga. Einnig beinir innri endurskoðandi

tillögum um úrbætur eða nýjar reglur á þessum sviðum til bankaráðs og

bankastjóra. Innri endurskoðun framkvæmir úttektir og rannsóknir samkvæmt

beiðni eða í samvinnu við bankaráð og bankastjóra og ber ábyrgð á innri endurskoðun

samstæðunnar í heild.

Innri endurskoðun metur einnig hvort fullnægjandi og skilvirkt eftirlit sé með

stjórnarháttum, starfsemi og upplýsingakerfum bankans. Þetta mat tekur til áreiðanleika

og heildstæðis upplýsingagjafar í tengslum við fjárhag og rekstur, skilvirkni

og áhrifa starfseminnar og eignavörslu. Einnig er lagt mat á hvort ákvæðum laga,

reglna og samninga sé fylgt í starfseminni.

Starfsáætlun innri endurskoðunar er háð samþykki endurskoðunarnefndar

bankaráðs.