Ãrsskýrsla 2007 - BTB
Ãrsskýrsla 2007 - BTB
Ãrsskýrsla 2007 - BTB
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Ársskýrsla 2007

36

Vágildi hlutabréfa

(án fjáreigna á gangvirði í gegnum

rekstrarreikning og óskráðra hlutabréfa)

Í milljónum króna

1.500

tengd við viðeigandi hlutabréfavísitölur og frammistaða þeirra kvörðuð með

því að nota viðeigandi betagildi. Vegna þessarar varfærnislegu aðferðar hafa

óskráð hlutabréf hlutfallslega meiri áhrif á vágildið. Þriðja vágildisreikniaðferðin

undanskilur óskráð hlutabréf og endurspeglar því áhættuna í veltubók þar sem

áhættan er gagnsærri.

1.000

500

0

-500

-1.000

-1.500

Áhrifin af undirmálslánakreppunni í Bandaríkjunum endurspeglast greinilega í

vágildum fyrir árið 2007. Eftir tiltölulega rólegan fyrri árshelming jókst flökt á

fjármálamörkuðum umtalsvert eftir því sem áhrif kreppunnar urðu ljósari og

hélst flöktið mikið. Flökt helstu vísitalna hefur tvöfaldast og jafnvel þrefaldast frá

byrjun kreppunnar. Þrátt fyrir þessa aukningu á flökti sýnir vágildisgreiningin að

tap hefur ekki orðið meira en spáð var á þessu tímabili og fjöldi brota yfir árið er

vel innan þeirra marka sem krafist er.

jan. 07 mar. 07 maí 07 júl. 07 sep. 07 nóv. 07

99% líkindamörk -99% líkindamörk P/L

Gengisbundnar eignir og skuldir

Gengisbundnar eignir 2.122,4 milljarðar króna

Gengisbundnar skuldir 2.414,7 milljarðar króna

Nettó staða innan efnahags (292,3) milljarðar króna

Nettó staða utan efnahags 406,5 milljarðar króna

Nettó staða

114,2 milljarðar króna

Gjaldeyrisáhætta

Gjaldeyrisáhætta er áhætta vegna flökts á gjaldmiðlum. Gjaldeyrisáhættu bankans

er stýrt samkvæmt því markmiði að halda áhættuþáttum innan skilgreindra

marka, sem ákvörðuð eru af fjármálanefnd. Breyting á gjaldeyrishlutfalli á móti

krónu mun hafa áhrif á eiginfjárhlutfall samstæðunnar, þar sem eignir í erlendri

mynt eru 69% af eignum samstæðunnar á meðan eigið fé er í íslenskum krónum.

Gjaldeyrisstaða samstæðunnar er verulega jákvæð og hefur hún gefið út víkjandi

lán í erlendri mynt til að verja þá áhættu. Þak á gjaldeyrisáhættu er 7,6% af

áhættugrunni bankans fyrir gnóttstöðu eða 3,3% fyrir skortstöðu. Í árslok 2007

nam löng staða í gjaldeyri 4,97% af áhættugrunni.

Vágildi fyrir gjaldeyri

Í milljónum króna

2.000

1.500

1.000

Í árslok 2007 var vágildi fyrir gjaldeyrisáhættu 2.064 milljónir króna. Daglegt

meðaltalsvágildi bankans jókst í 791 milljónir árið 2007, úr 67 milljónum árið

2006. Aukningin er til komin vegna þeirrar ákvörðunar bankans árið 2007 að

byggja upp umtalsverða gjaldeyrisstöðu til að verja eiginfjárhlutfallið gegn flökti

íslensku krónunnar.

500

0

-500

-1.000

-1.500

jan. 07 mar. 07 maí 07 júl. 07 sep. 07 nóv. 07

99% líkindamörk -99% líkindamörk P/L

Vaxtaáhætta

Vaxtaáhætta er áhættan sem stafar af áhrifum hugsanlegra breytinga á grunnvöxtum,

á vaxtamun tveggja vaxtastiga, á lögun vaxtaferla eða af annars konar

vaxtaáhrifum. Virði vaxtatengdra fjármálagerninga veltur á gildi áhættulausra

vaxta, lánshæfi sem tengist þessum fjármálagerningum og því vaxtaálagi sem

af hlýst. Breytingar á grunnvöxtum eru meðhöndlaðar sem hluti af markaðsáhættu.

Breytingar á lánshæfi og vanefnir eru meðhöndlaðar sem hluti

af mótaðilaáhættu. Í árslok 2007 reyndist vágildi vegna vaxtaáhættu 886

milljónir króna.