30.06.2015 Views

Ársskýrsla 2007 - BTB

Ársskýrsla 2007 - BTB

Ársskýrsla 2007 - BTB

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

115 Landsbankinn

Laurent Quirin er forstjóri Landsbanki Kepler. Hann útskrifaðist frá European Business

School 1986 með hagfræðigráðu. Hann tók þátt í stofnun Julius Baer France

SA 1997 og starfaði þar sem framkvæmdastjóri og síðar forstjóri til 1999. Áður

en hann réðist til Julius Baer starfaði hann hjá Dynabourse International, sem er

verðbréfahluti Crédit Agricole Group SA, en þar tók hann til starfa sem sölumaður

áður en hann varð forstöðumaður skuldabréfasviðs. Hann er í stjórn dótturfyrirtækja

Landsbanki Kepler, Kepler Equities, Suisse SA og Landsbanki Kepler Inc.

Mark Sismey-Durrant, er forstjóri Landsbanki Heritable Bank og framkvæmdastjóri

Icesave. Hann lauk BSc (Hons) gráðu í bankarekstri og fjármálum 1981 og

MPhil gráðu í alþjóðabankarekstri og hagfræði árið 1983 frá Loughborough University

of Science and Technology. Hann hefur stjórnað Heritable Bank í London

frá 2002. Áður starfaði hann hjá Sun Bank plc frá 1990, síðast sem forstjóri og

varaformaður stjórnar þar og hjá Sun Bank Offshore Ltd. Hann var einnig í stjórn

hjá Sun Life Financial UK. Hann var stjórnarformaður Key Business Finance, dótturfyrirtækis

Landsbanki Heritable sem keypt var árið 2005, og varð stjórnarmaður

í Landsbanki Guernsey Ltd árið 2006. Hann var skipaður í stjórn British Bankers

Association (BBA) 2007. Hann er einnig í fulltrúaráði BBA, formaður BBA Small

Bank Advisory Panel, meðlimur í Chartered Institute of Bankers og Royal Society

of Arts, Design and Manufactures.

Nick Stagg, forstjóri Landsbanki Securities UK Ltd útskrifaðist með BSc gráðu

í eðlisfræði frá University College í London árið 1981 og fékk löggildingu sem

endurskoðandi frá KPMG 1984. Hann var framkvæmdastjóri hjá fasteignarekstrarfélaginu

Lambert Smith Hampton plc og starfaði einnig fyrir WS Atkins plc þar

sem hann hafði umsjón með erlendri starfsemi þess í 24 löndum. Áður var hann

fjármálastjóri hjá London Shop plc. Árið 2001 kom hann til starfa hjá Teather &

Greenwood Holdings plc og varð forstjóri þar í ágúst 2004. Stagg situr í stjórn

Inventive Leisure plc.

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!