Ãrsskýrsla 2007 - BTB
Ãrsskýrsla 2007 - BTB
Ãrsskýrsla 2007 - BTB
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
13 Landsbankinn

Efnahagsmál og fjármálamarkaðir

Á fyrri hluta ársins 2007 voru aðstæður á fjármálamörkuðum

Landsbankanum hagstæðar, vöxtur var stöðugur og almenn

bjartsýni ríkjandi. Á sama tíma dró úr umsvifum á fasteignamörkuðum

víða um heim eins og vænst hafði verið. Þegar leið

á árið komu fram vandamál vegna hratt vaxandi greiðslubyrði

svokallaðra undirmálslána í Bandaríkjunum þegar vextir á þeim

hækkuðu verulega. Með haustinu breytti undirmálslánakreppan

í Bandaríkjunum aðstæðum á mörkuðum verulega; fjármögnunarkostnaður

hækkaði og í kjölfarið fór eignaverð lækkandi.

Þrátt fyrir þetta var vöxtur í íslenska hagkerfinu umfram spár

en almennt hafði verið reiknað með því að verulega myndi

hægja á hagkerfinu á árinu.

Mikill vöxtur var enn í fjárfestingum öðrum en stóriðju sem

og einkaneyslu sem var knúin áfram af vaxandi kaupmætti

og auðsáhrifum. Nú lítur út fyrir að hagvöxtur á árinu 2007

hafi verið tæplega 4%. Viðskiptahallinn minnkaði á árinu í

kjölfar þess að innflutningur fjárfestingarvara dróst saman og

álútflutningur fór vaxandi. Vextir af íbúðalánum hækkuðu á

árinu og undir lok árs sáust merki um minnkandi umsvif á innlendum

fasteignamarkaði. Fjármögnunarkostnaður hér á landi

hækkaði eins og víðar en versnandi lánskjör má rekja til aukinnar

áhættufælni í kjölfar undirmálslánakreppunnar.

Íslenska hagkerfið

Búist var við minnkandi hagvexti árið 2007 eftir áralanga uppsveiflu. Hagvöxtur

árið 2007 virðist hins vegar hafa verið vel yfir flestum spám, eða 3,8%. Í upphafi árs

bentu ýmsar vísbendingar til þess að hægt hefði á hagkerfinu en á öðrum ársfjórðungi

hafði hagkerfið tekið við sér á nýjan leik og innlend eftirspurn jókst á ný.

Fjárfesting í álframleiðslu og tengdum orkuverum minnkaði á árinu þótt samdrátturinn

hafi verið hægari en búist hafði verið við vegna tafa á byggingu Kárahnjúkavirkjunar.

Fjárfesting í húsnæði jókst áfram á meðan húsnæðisverð hækkaði

hratt þar til 12 mánaða aukning hennar náði 15% í lok árs.