Ãrsskýrsla 2007 - BTB
Ãrsskýrsla 2007 - BTB
Ãrsskýrsla 2007 - BTB
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
77 Landsbankinn

Einstaklingsviðskipti

Landsbankinn er og hefur verið leiðandi viðskiptabanki á

íslenskum bankamarkaði. Áhersla á góða þjónustu og ábyrga

fjármálaráðgjöf hefur verið leiðarljós bankans undanfarin ár

og ánægja viðskiptavina hefur aukist verulega með þessum

áherslum. Starfsumhverfi bankans breytist mjög hratt og eru

vörur hans og þjónusta í sífelldri endurskoðun í samræmi við

þarfir viðskiptavina. Útibú miða að því að veita fjölbreytta

þjónustu til að sinna margvíslegum þörfum viðskiptavina.

Ráðgjafa- og þjónustuver hefur verið eflt til að mæta æ fleiri

viðskiptavinum sem vilja eiga bankaviðskipti í gegnum síma.

Jafnframt hefur þróun á Einkabanka og vefsvæðum bankans

verið forgangsatriði til að tryggja einfaldleika í þjónustu við

viðskiptavini á netinu.

Viðskiptabankastarfsemi hefur vaxið og dafnað með útrás bankans en mikil velgengni

á Bretlandsmarkaði hefur meira en tvöfaldað fjölda einstaklinga og lítilla fyrirtækja í

viðskiptum á árinu. Jafnframt hafa heildarinnlán bankans aukist um 108% milli ára,

þar af er stærstur hluti vegna innlána einstaklinga. Árið 2007 er fyrsta árið í sögu

Landsbankans sem umsvif í viðskiptabankaþjónustu eru umtalsverð utan Íslands.

Um áramót 2007/2008 áttu um 150 þúsund manns í Bretlandi sparnaðarreikning

á netinu undir vörumerkinu Icesave. Þótt hér sé um ákaflega takmarkaðan þátt af

viðskiptabankastarfsemi að ræða hefur myndast verðmæt reynsla innan bankans

sem mun nýtast vel ef aukin áhersla verður lögð á einstaklingsviðskipti í starfsemi

bankans utan Íslands.

Markaðshlutdeild og lykilmælikvarðar 2007

Niðurstöður markaðsrannsókna, framkvæmdra af Capacent Gallup, sýna að Landsbankinn

var með um 28% hlutdeild á innlendum markaði í árslok 2007. Sömu sögu

er að segja af hlutdeild bankans í veltu á debet- og kreditkortum. Hlutdeild í debetkortaveltu

var um 28% á árinu en hlutdeild í kreditkortaveltu var um 27%. Þessi

staða tryggir bankanum leiðandi markaðshlutdeild á íslenskum viðskiptabankamarkaði

en bankinn hefur sett sér markmið um að leiða áfram viðskiptabankamarkaðinn

á Íslandi líkt og hann hefur gert í áraraðir.

Útlán útibúa á árinu námu 392 milljörðum króna í árslok og jukust um 33% árinu.

Lán til einstaklinga námu um 206 milljörðum króna en lán til fyrirtækja og annarra