Ãrsskýrsla 2007 - BTB
Ãrsskýrsla 2007 - BTB
Ãrsskýrsla 2007 - BTB
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
49 Landsbankinn

Regluvarsla uppfærir reglulega reglur og verkferla bankans. Regluvarsla sér um

gerð verkferla, myndrænna lýsinga á verklagi í höfuðstöðvum og dótturfélögum

bankans. Verkferlum er ætlað að tryggja að ávallt sé farið að þeim lögum og

reglum sem bankinn starfar eftir. Mögulegir hagsmunaárekstrar í starfsemi bankans

eru metnir og er vernd fjárfesta ávallt forgangsatriði.

Eitt af megin viðfangsefnum regluvörslu árið 2007 var innleiðing á tilskipun Evrópusambandsins

um markaði fyrir fjármálagerninga (MiFID). MiFID tók gildi 1.

nóvember 2007 og hafði í för með sér víðtækar breytingar á viðskiptaháttum með

fjármálagerninga. Tilskipunin veitir almennum viðskiptavinum aukna vernd og

gerð er krafa um að bankarnir búi yfir meiri upplýsingum um viðskiptavini og

flokki þá til að tryggja að þeim bjóðist viðeigandi þjónusta. Innleiðing á MiFID-tilskipuninni

var stórt verkefni og að því unnu starfsmenn regluvörslu ásamt öðrum

starfsmönnum samstæðunnar.