11.01.2014 Views

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

SHOW MORE
SHOW LESS

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

Jaberg, vinnur að rannsóknum sínum á RMA og hátternisfræðideild háskólans í

Neuchatel í Sviss. Fjórir aðrir starfsmenn störfuðu við stofnunina á árinu launaðir

af Nýsköpunarsjóði námsmanna og Tækniþróun hf.

Erlent rannsóknasamstarf

Rannsóknastarf á RMA fer fram í nánum tengslum við rannsóknastofnanir á sviði

sálarfræði, hátternisfræði og geðlæknisfræði við erlenda háskóla, m.a. á grundvelli

formlegra háskólasamninga við sex evrópska háskóla. Langmest samstarf

er við sálarfræðideildina í Université René Descartes Paris V – Sorbonne sem

einnig er CNRS-rannsóknastofa um samskipta- og hugfræði, en hinir háskólarnir

sem um er að ræða eru Université Paris-Nord í Frakklandi, Université de Lausanne

í Sviss og Universitat de Barcelona, Universitat Rovira i Virgili og Universitat

LaRioja á Spáni. Einnig er um langvarandi samstarf að ræða við mannfræðistofnunina

á Musée de l’Homme, Museum National d’Histoire Naturelle í París, sálfræðideild

University of Chicago og hátternisfræðideild Vínarháskóla. Vaxandi

samstarf er einnig við háskólageðsjúkrahúsið í Utrecht í Hollandi.

Á sviði íþróttarannsókna er um síaukið samstarf að ræða við John Moors University

í Liverpool og háskóladeildina um aðferðafræði atferlisvísinda við Barcelonaháskóla.

Innlent samstarf

Helsti innlendi samstarfsaðili RMA til margra ára er Greiningarstöð ríkisins í

Kópavogi en þar stunda Tryggvi Sigurðsson, yfirsálfræðingur, og samstarfsfólk

hans rannsóknir á samskiptahegðun fatlaðra barna og foreldra þeirra, m.a. með

aðferðum sem hafa verið þróaðar á RMA og í tengslum við Parísarháskóla. Einnig

er um samstarf að ræða við fyrirtækið Flögu hf. um greiningu á lífeðlisfræðilegum

gögnum og við Veðurstofu Íslands um leit að tímamynstrum í jarðskjálftagögnum.

Útgefnar greinar eða bókarkaflar á árinu

• Beaudichon, J.; Sigurdsson, T.; Tardif, C. og Magnusson, M.S. (1999). Communication

et construction collaborative des savoir: une approch comparative.

Développement et fonctionnement cognitif: Vers une intégration. G. Netchine-

Grynberg. París, Press Universitaires de France: 244.

• Magnusson, M. S. (2000). Discovering Hidden Time Patterns in Behavior: T-

Patterns and their Detection. Behavior Research Methods, Intruments and

Computers 32(1):93–110. (Samþykkt til birtingar 1999).

Fyrirlestrar

• Magnús S. Magnússon. Fyrirlestur á ráðstefnunni „Sign Processes in Complex

Systems: 7th International Congress of the IASS-AIS International Association

for Semiotic Studies“ við tækniháskólann í Dresden, 6.–11. október 1999.

• Guðberg K. Jónsson: Fyrirlestur um íþróttarannsóknir með Theme-hugbúnaðinum

og margmiðlunarkynning á fundi EU CORE-NET í Reykjavík í september

1999.

B.A.-nemendur

Árið 1999 unnu sex sálarfræðinemendur við H.Í. að B.A.-verkefnum sínum við

RMA undir leiðsögn Magnúsar S. Magnússonar. Tveir luku á árinu.

Verðlaun og stofnun fyrirtækis

Guðberg K. Jónsson, starfsmaður stofnunarinnar, hlaut fyrstu verðlaun í samkeppninni

„Upp úr skúffunum“ sem Rannsóknaþjónusta H.Í. og Nýsköpunarsjóður

atvinnulífsins standa fyrir. Hugmynd Guðbergs er að nýta Theme-hugbúnaðinn til

íþróttarannsókna. Í framhaldi af því hefur verið stofnað nýtt fyrirtæki, SportScope,

með þátttöku Tækniþróunar hf. sem er aðaleigandi. Guðberg er meðeigandi þess

og framkvæmdastjóri meðfram starfi sínu við RMA.

Kennsluefni

Á árinu var lokið við tveggja ára verkefni um gerð geisladisks (á ensku, spænsku

og frönsku) um skoðun og greiningu atferlis. Þetta er samstarfsverkefni milli University

of Liverpool, háskólans í Barcelone, H.Í. og hollenska fyrirtækisins Noldus

Information Technologies, Ltd. (sem er sérhæft í gerð hugbúnaðar til atferlisrannsókna).

David W. Dickins, sálfræðideild University of Liverpool er aðalhöfundur, en Magnús

S. Magnússon er vísindalegur ráðgjafi, meðhöfundur og leggur til Theme-hugbúnaðinn

(nemendaútgáfu). Nú er stefnt að útgáfu þessa geisladisks.

113

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!