11.01.2014 Views

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

Stjórn Málvísindastofnunar skipuðu Magnús Snædal dósent, forstöðumaður, Margrét

Jónsdóttir dósent, meðstjórnandi og Hallgrímur J. Ámundason fulltrúi stúdenta,

ritari. Starfsmenn voru Áslaug J. Marinósdóttir framkvæmdastjóri, Gestur

Svavarsson, hlutastarf (30%) janúar–maí, Haraldur Bernharðsson, hlutastarf (50%)

júní–september, Jóhannes Bjarni Sigtryggsson, hlutastarf (30%) október–desember.

Rannsóknir

Stofnunin styrkti langssniðsathugun á máli íslensks barns með því að greiða laun

aðstoðarmanns í þrjá mánuði. Unnið var að því að skrá efni af segulbandi og

koma þeim gögnum á tölvutækt form. Umjónarmaður verkefnisins er Sigríður

Sigurjónsdóttir.

Kynningarstarfsemi

Útgáfa

• Haraldur Bernharðsson: Málblöndun í sautjándu aldar uppskriftum íslenskra

miðaldahandrita. (Málfræðirannsóknir, 11. bindi.)

• Jón Helgason: Málið á Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar. (Rit um íslenska

málfræði 4.) [Ljósprentun útgáfunnar frá 1929.]

• Auk þess voru sex áður útgefnar bækur endurútgefnar og endurprentaðar.

Ráðstefnur

Fulltrúi stofnunarinnar, Margrét Jónsdóttir, sótti ráðstefnu í Reykholti í lok júní,

sem haldin var í tilefni af því að hundrað ár voru liðin frá fæðingu Jóns Helgasonar

prófessors. Kynnti hún endurprentun á bók Jóns, Málið á Nýja-testamenti

Odds Gottskálkssonar sem gerð var af þessu tilefni.

Guðvarður Már Gunnlaugsson hélt fyrir hönd stofnunarinnar erindi á ráðstefnu

um skaftfellskan framburð sem haldin var í októberlok á Höfn í Hornafirði.

Annað

Stofnunin veitti einum stúdent ferðastyrk á ráðstefnu, 50 þúsund krónur. Stofnunin

flutti á árinu úr Árnagarði í Nýja-Garð í húsnæði Hugvísindastofnunar þar sem

allar rannsóknastofnanir heimspekideildar eru nú til húsa. Heimasíða stofnunarinnar

er tengd við heimasíðu Háskólans (undir „Stofnanir“) en slóðin er annars:

www.hi.is/pub/malvis.

Sagnfræðistofnun

Samkvæmt reglugerð skal Sagnfræðistofnun m.a. annast rannsóknir, gangast

fyrir ráðstefnum, námskeiðum, rannsóknaræfingum og fyrirlestrum og standa

fyrir útgáfu.

Stjórn og starfsmenn

Stjórnina skipuðu framan af ári Helgi Þorláksson, sem gegndi starfi forstöðumanns,

Loftur Guttormsson og fulltrúi stúdenta, Björn Ingi Hrafnsson. Hann lét af

störfum síðsumars og við tók Guðrún Harðardóttir.

Starfsmenn stofnunarinnar voru Rósa Magnúsdóttir á vormisseri og Eggert Þór

Aðalsteinsson á haustmisseri. Þau hafa einkum séð um sölu ljósritaðra kennslugagna.

Forstöðumaður sat í stjórn Hugvísindastofnunar.

Gistifræðimenn og fyrirgreiðsla

Agneta Ney sem var gistifræðimaður við stofnunina 1998 kom aftur á haustmánuðum

og nýtur fyrirgreiðslu sem gistifræðimaður stofnunarinnar veturinn

1999–2000. Hrefna Róbertsdóttir, sem stundar doktorsnám í Lundi, nýtur fyrirgreiðslu

sem gistifræðimaður í þrjá mánuði, frá desember 1999 til janúar 2000.

Jesse L. Byock prófessor hefur notið nokkurrar fyrirgreiðslu stofnunarinnar

vegna tölvupósts.

Rannsóknarverkefni

Á vegum stofnunarinnar var unnið áfram að verkefninu Saga íslenskrar utanlandsverslunar

900–2002. Sami undirbúningshópur og áður starfaði að verkefninu

en það hlaut forverkefnisstyrk frá Rannís, 400 þúsund kr. Hópurinn hélt marga

fundi á árinu, m.a. kynningarfund á vegum Sagnfræðingafélags Íslands í maí en

félagið gekk til samstarfs við hópinn um fyrirlestraröð á haustmisseri undir heitinu

„Hvað er hagsaga?“ Hópurinn réð sér starfsmann, Magnús Svein Helgason

83

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!