11.01.2014 Views

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

SHOW MORE
SHOW LESS

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

hæð hússins (auk 12 fm geymslu í næsta húsi, Haga við Hofsvallagötu).

Eftirtalin voru skipuð af menntamálaráðherra í Íslenska málnefnd til fjögurra ára

frá 1. janúar 1998 að telja: Baldur Sigurðsson, tilnefndur af Hagþenki, varamaður

Hildigunnur Halldórsdóttir. Björn Jóhannsson, tilnefndur af Blaðamannafélagi Íslands,

varamaður Inga G. Guðmannsdóttir. Guðrún Kvaran, tilnefnd af Orðabók

Háskólans, varaformaður, varamaður Gunnlaugur Ingólfsson. Jónas Kristjánsson,

skipaður án tilnefningar, varamaður Svala Valdemarsdóttir. Kristján Árnason, tilnefndur

af heimspekideild Háskóla Íslands, formaður, varamaður Þóra Björk

Hjartardóttir. Margrét Pálsdóttir, tilnefnd af Ríkisútvarpinu, varamaður Helgi Már

Arthúrsson. Melkorka Tekla Ólafsdóttir, tilnefnd af Þjóðleikhúsinu, varamaður Jóhann

G. Jóhannsson. Ragnheiður Briem, skipuð án tilnefningar, varamaður Brynjúlfur

Sæmundsson. Sigríður Sigurjónsdóttir, tilnefnd af háskólaráði, varamaður

Eiríkur Rögnvaldsson. Sigrún Helgadóttir, skipuð án tilnefningar, varamaður Þorsteinn

Sæmundsson. Sigurður Konráðsson, tilnefndur af Kennaraháskóla Íslands,

varamaður Baldur Hafstað. Símon Jón Jóhannsson, tilnefndur af Samtökum

móðurmálskennara, varamaður Ingibjörg Einarsdóttir. Þorgeir Sigurðsson, tilnefndur

af Staðlaráði Íslands, varamaður Guðrún Rögnvaldardóttir. Þórarinn Eldjárn,

tilnefndur af Rithöfundasambandi Íslands, varamaður Vigdís Grímsdóttir.

Þórhallur Vilmundarson, tilnefndur af örnefnanefnd, varamaður Guðrún S. Magnúsdóttir.

Íslensk málnefnd kom saman til fundar 7. desember.

Innan Íslenskrar málnefndar starfar stjórn sem var þannig skipuð 1999: Kristján

Árnason formaður, varamaður Þóra Björk Hjartardóttir. Guðrún Kvaran varaformaður,

varamaður Gunnlaugur Ingólfsson. Jónas Kristjánsson, varamaður Þorgeir

Sigurðsson. Sigríður Sigurjónsdóttir, varamaður Eiríkur Rögnvaldsson. Sigrún

Helgadóttir, varamaður Baldur Sigurðsson.

Starfsmenn og rekstur

Starfslið Íslenskrar málstöðvar á árinu var: Ari Páll Kristinsson, forstöðumaður til

1. júlí (í leyfi Baldurs Jónssonar), sérfræðingur (í rannsóknaleyfi) frá 1. júlí til ársloka.

Baldur Jónsson prófessor, forstöðumaður (hafði leyfi frá stjórnsýslustörfum

til 1. júlí). Dóra Hafsteinsdóttir, deildarstjóri. Hanna Óladóttir, lausráðin (starfshlutfall

60%) til 10. september. Kári Kaaber, deildarstjóri.

Tekjur 1999: 22.152.441 kr. Þar af var framlag úr ríkissjóði 13.228.941 kr. en aðrar

tekjur 8.923.500 kr. Gjöld 1999: 23.435.991 kr. Helstu „aðrar tekjur“ voru af bóksölu

(1.320.115 kr.), af yfirlestri handrita (1.981.251 kr.), áskrift menntamálaráðuneytis

að orðabanka málstöðvarinnar (3.200.000 kr.) og styrkir til afmarkaðra viðfangsefna

(2.422.134). Athuga verður að þetta eru bráðabirgðatölur, birtar með fyrirvara,

þar sem ársreikningur liggur ekki fyrir.

Málstöðin starfaði samkvæmt samningi við menntamálaráðuneytið (sem gildir

1998–2000) í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um árangursstjórnun í ríkisrekstri.

Starfsemi

Málstöðin svarar fyrirspurnum um íslenskt mál og veitir ráð og leiðbeiningar um

málfarsleg efni, oftast í síma en einnig í tölvupósti og bréflega. Þessi ráðgjöf er

tímafrekur þáttur í starfseminni. Fyrirspurnir og svör voru um 1800 talsins á árinu.

Af öðrum þáttum í þjónustustarfi málstöðvarinnar má nefna yfirlestur ritsmíða,

einkum fyrir opinberar stofnanir og ráðuneyti.

Á árinu var, að ósk menntamálaráðuneytis, fjallað í stjórn málnefndar og málnefndinni

allri um tillögur, sem ráðuneytið hafði til athugunar, um breytingu á lögum

um Íslenska málnefnd. Samkvæmt þeim er ekki gert ráð fyrir því að málnefndin

reki málstöðina í samvinnu við Háskóla Íslands, né heldur að forstöðumaður

verði jafnframt prófessor í heimspekideild Háskólans eins og verið hefur.

Forstöðumaður Íslenskrar málstöðvar, Baldur Jónsson prófessor, fékk á árinu

lausn frá störfum fyrir aldurs sakir frá 1. janúar 2000. Á fundi Íslenskrar málnefndar

7. desember þakkaði formaður Baldri fyrir störf hans í þágu Íslenskrar

málnefndar. Baldur var formaður nefndarinnar 1978–1988 og forstöðumaður Íslenskrar

málstöðvar frá upphafi (1985). Fram kom í máli formanns að Baldur

hefði með störfum sínum mótað að verulegu leyti það fyrirkomulag í málræktarstarfi

sem nú er á og yrði honum seint fullþakkað. Vegna fyrirhugaðra lagabreytinga

(sjá fyrri efnisgrein) hafði embætti forstöðumanns ekki verið auglýst í árslok.

Baldur Jónsson prófessor var í leyfi frá stjórnsýslustörfum í málstöðinni til 1. júlí

86

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!