11.01.2014 Views

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

SHOW MORE
SHOW LESS

Create successful ePaper yourself

Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.

Rannsóknir

Rannsóknastarfsemi heimspekideildar fer fram á vegum fimm rannsóknastofnana

deildarinnar og standa þær einnig fyrir margvíslegri útgáfustarfsemi. Auk

þess sinna kennarar rannsóknum sínum sjálfstætt, í samvinnu við stofnanir

deildarinnar eða aðra aðila innanlands sem utan. Nánar er fjallað um rannsóknirnar

í kaflanum um Hugvísindastofnun.

Alþjóðasamskipti

Heimspekideild er eina deild Háskólans sem hefur ráðið til sín sérstakan alþjóðafulltrúa

til að annast alþjóðasamskipti deildarinnar. Það er Guðrún Birgisdóttir og

hefur hún aðsetur á skrifstofu deildarinnar í Nýja-Garði. Hún sér m.a. um að

meta nám þeirra íslensku skiptinema sem fara utan á vegum Sókrates- og Nordplus-áætlananna

og jafnframt þeirra sem fara sem skiptinemar til Bandaríkjanna

og Kanada. Þá sér hún um að kynna nám deildarinnar fyrir erlendum skiptinemum

og er þeim til aðstoðar. Guðrún ritstýrir og sér um útgáfu á árlegum bæklingi

Háskóla Íslands „Guide and English Course Catalogue For Incoming Exchange

Students". Bæklingur þessi er á ensku og er ætlaður erlendum nemum og

skiptinemum við Háskólann. Hann hefur að geyma almennar upplýsingar um

nám við Háskóla Íslands og skrá yfir öll námskeið sem kennd eru á ensku við

Háskólann.

Erlendir stúdentar við deildina voru 216 á árinu, þar af lögðu 116 stund á íslensku

fyrir erlenda stúdenta. Hafði þeim fjölgað umtalsvert frá árinu áður. Námskeið í

tungumálagreinum fara að jafnaði fram á viðkomandi tungumáli en auk slíkra

námskeiða voru átján námskeið og málstofur haldin á ensku fyrir erlenda stúdenta.

Nefna má tvö námskeið fyrir erlenda stúdenta sem byrjað var að kenna á

vormisseri 1999 fyrir styrk úr kennslumálasjóði. Annað er kennt í íslenskuskor,

„Highlights of Icelandic Literature", en hitt í sagnfræðiskor, „History of Iceland

from the Settlement to the Present". Þá stóð skor íslensku fyrir erlenda stúdenta

að námskeiðinu „Icelandic Culture, Language and Literature" fyrir erlenda skiptinema

sem hingað eru komnir til að stunda annað nám en íslensku. Námskeiðið

hefur verið í boði á hverju misseri undanfarin fjögur ár og aðsóknin hefur aukist

ár frá ári.

Stúdentar deildarinnar sem fóru til erlendra háskóla á vegum Sókrates-áætlunarinnar

á háskólaárinu 1998–1999 voru 37 talsins og fóru 36 þeirra utan haustið

1999. Á vegum Nordplus-áætlunarinnar fóru 11 utan árið 1998–1999 og 5 um

haustið 1999.

Kennarar deildarinnar tóku þátt í margvíslegum samskiptum við erlenda háskóla.

Ásdís Egilsdóttir, dósent í íslenskum bókmenntum, kenndi í tvær vikur í janúar

við norrænudeild háskólans í Bonn. Kennslan var felld að námskeiði um

dýrlingadýrkun og helgisagnaritun á Norðurlöndum. Ásdís hélt einnig einn opinberan

fyrirlestur á vegum deildarinnar: „Frauen, Bischöfe und Wunder.“ Þessi

kennsla var þáttur í starfsemi Sókrates-netsins „Heathen and Christian Religion

in Early Germanic Literature and its Latin Counterparts." Þeir háskólar sem taka

þátt í því eru háskólarnir í Bonn, Durham, Reykjavík og Róm. Umsjónarmaður

netsins er John McKinnell í Durham.

Á vegum þessa sama nets kom Rudolf Simek, prófessor í norrænum fræðum við

háskólann í Bonn, hingað til lands og kenndi við íslenskuskor í tvær vikur í október.

Kennslan var felld að námskeiðinu „Sagnaritun II“ og fjallaði hann einkum um

víkinga og heiðin minni í fornaldarsögum. Hann hélt einnig opinberan fyrirlestur á

vegum heimspekideildar um Selju og Seljumenn og málstofu með framhaldsnemum

og nokkrum fræðimönnum um ný viðhorf í rannsóknum á goðafræði.

Á vegum heimspekiskorar fóru fram fjölbreytileg alþjóðleg kennaraskipti:

• Valeria Ottonelli frá háskólanum í Genúa kenndi málstofunámskeiðið „Í leit að

lýðræði“ í febrúar–mars 1999 og tók þátt í málstofunámskeiðinu „Rætur

boðanna“. Hún kom til landsins sem gistikennari á vegum heimspekiskorar.

• Neil MacCormick, lagaprófessor við Edinborgarháskóla sem nú er orðinn

Evrópuþingmaður, kom til landsins í febrúar á vegum heimspekiskorar og

rektors og flutti opinberan fyrirlestur í boði rektors. Hann kenndi „ákafaviku“

(intensive week) um stofnunarlegt samhengi lagaboða í tengslum við málstofunámskeiðið

„Rætur boðanna“.

• Roger Pouivet frá Rennes-háskóla 1 kom til landsins sem Sókrates-skiptikennari

í apríl 1999 og kenndi „ákafaviku“ (intensive week) um skynsemiseðli

tilfinninganna í tengslum við málstofunámskeiðið „Rætur boðanna“.

• Nigel Dower frá Aberdeenháskóla kenndi málstofunámskeiðið „Alþjóðasið-

52

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!