11.01.2014 Views

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

Landsbókasafn Íslands –

Háskólabókasafn

Rekstur

Heildarrekstrarfé safnsins, að meðtöldum sértekjum, nam 392,9 m.kr. á árinu

1999. Þar af var fjárveiting til ritakaupa 70 m.kr. (Ritakaupasjóður H.Í. 46,5 m.kr.,

Landsbókasafnsþáttur 23,5 m.kr.) og fjárveiting frá H.Í. vegna lengingar opnunartíma

13,3 m.kr. Mannafli nam um 100 stöðugildum að meðtöldum ráðningum

vegna tímabundinna verkefna.

Árangursstjórnun

Þrítugasta desember 1999 var undirritaður árangursstjórnunarsamningur milli

safnsins og menntamálaráðuneytisins, og gildir hann fyrir tímabilið 1. janúar

2000 til 31. desember 2002. Tilgangur samningsins er að festa í sessi ákveðið

samskiptaferli milli ráðuneytis og stofnunar, auk þess að draga fram áherslur

vegna stefnumótunar og áætlanagerðar. Samningurinn felur ekki í sér fjárhagslegar

skuldbindingar af hálfu ríkisins, rekstrarframlag safnsins er eftir sem áður

ákveðið í fjárlögum fyrir hvert þessara þriggja ára um sig.

Aðföng rita

Alls bárust safninu um 14 þúsund bækur og bæklingar á árinu 1999. Þar af voru

keyptar bækur um 3.960 bindi. Tímarit, blöð og ritraðir voru samtals um 5.000,

þar af 1.855 keyptar áskriftir. Allmikið af ritum sem gefin hafa verið safninu bíða

skráningar og eru ekki inni í þessum tölum.

Skráning í tölvukerfi

Færslur í Gegni, Greini (tímaritsgreinar) og Gelmi (handrit) voru orðnar um 837

þúsund í lok ársins og fjölgaði um rúmlega 117 þúsund á árinu. Bókasöfnum sem

eiga fulla aðild að Gegni fjölgaði úr níu í tíu, en auk skrár safnsins hýsir hann

einnig samskrá um bækur 20 annarra bókasafna og tímarit um 60 bókasafna.

Útlán

Útlán voru um 72 þúsund og voru svipuð og á fyrra ári. Þar af var um 41 þúsund

lán til stúdenta við H.Í. og um níu þúsund til starfsmanna H.Í. Útlán í útibúum og

lán á lestrarsali þjóðdeildar og handritadeildar eru ekki inni í ofangreindri tölu,

auk þess sem mikið af ritum er á sjálfbeina og því ekki skráð í lán séu þau notuð

innan safnsins.

Lenging opnunartíma

Eins og getið er í skýrslu síðasta árs tókst Háskólanum að útvega fjármagn á

fjárlögum til að lengja opnunartíma safnsins enn frekar en orðið var. Gerði Háskólinn

samning við safnið um framkvæmd lengingarinnar, og tók hann gildi 1.

febrúar 1999. Samkvæmt samningnum verður safnið opið sem hér segir níu og

hálfan mánuð á ári: mánudaga til fimmtudaga kl. 8:15–22:00, föstudaga kl.

8:15–19:00, laugardaga kl. 9:00–17:00 og sunnudaga kl. 11:00–17:00. 1. júní – 15.

ágúst er opið virka daga kl. 9:00–17:00 og laugardaga kl. 10:00–14:00.

Skylduskil

Samkvæmt lögum nr. 43/1977 um skylduskil til safna veitir Landsbókasafn viðtöku

öllu því sem prentað er í landinu eða gefið út sem hljóðrit. Skilaskyldan tekur

til fjögurra eintaka af prentuðu máli en þriggja af hljóðritum. Eitt þessara eintaka

er sent áfram til Amtsbókasafnsins á Akureyri, hinum heldur Landsbókasafn.

1. ágúst 1997 skipaði menntamálaráðherra nefnd til að endurskoða gildandi

lagaákvæði um skylduskil, undir forystu landsbókavarðar. Nefndin skilaði drögum

að frumvarpi í desember 1999. Meðal þess sem lagt er til að bætist við sem

skylduskilaefni eru hvers kyns rafræn gögn. Frumvarpið verður til meðferðar Alþingis

á árinu 2000.

Nokkrar gjafir

• Á samkomu starfsmanna safnsins 4. janúar færði Finnbogi Guðmundsson

fyrrverandi landsbókavörður safninu tuttugu binda ljósprentun Munksgaards

af íslenskum fornritum. Gjöfin er færð safninu í minningu nær hálfrar aldar

ferils þeirra feðganna í embætti landsbókavarðar, Guðmundar Finnbogasonar

1924–43 og Finnboga 1964–94.

• Hertha Töpper-Mixa óperusöngkona afhenti safninu 23. júní hluta af tónverkasafni

eiginmanns síns, tónskáldsins dr. Franz Mixa, en hann lést 1994.

141

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!