11.01.2014 Views

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

kennslu og rannsókna og fyrir önnur störf í þágu Háskólans. Viðurkenningin fyrir

kennslu féll í hlut Páls Hreinssonar, dósents við lagadeild, viðurkenningin fyrir rannsóknir

var veitt Kesara Anamthawat-Jónsson, dósent við raunvísindadeild, og Brynjólfur Sigurðsson,

prófessor við viðskipta- og hagfræðideild, hlaut viðurkenningu fyrir langt og farsælt

starf í þágu byggingamála Háskólans. Rektor afhenti starfsmönnunum þremur viðurkenningarskjöl

og peningaverðlaun. Mæltist þessi nýbreytni vel fyrir og var starfsmönnunum

þremur klappað lof í lófa.

Opinn háskóli

Háskóli Íslands á víðtækt samstarf við fjölmarga aðila í atvinnu- og þjóðlífi jafnt innanlands

sem utan. Þetta samstarf hefur eflst mjög á undanförnum árum. Til dæmis má

nefna:

• Samstarf við stjórnvöld og opinberar stofnanir um sérfræðilega ráðgjöf á ýmsum fagsviðum,

faglegar umsagnir, álitsgerðir og þjónusturannsóknir.

• Samstarf við sveitarfélög og staði á landsbyggðinni um rannsóknir, kennslu og

nýsköpun, m.a. við Sandgerði, Hveragerði, Selfoss, Vestmannaeyjar, Kvísker í Öræfum,

Höfn í Hornafirði, Mývatnssveit, Akureyri, Hóla í Hjaltadal, Sauðárkrók, Bolungarvík,

Ísafjörð, Bifröst og Hvanneyri.

•Samstarf við fyrirtæki um kennslu, rannsóknir og þróunarstarf. Meðal fyrirtækjanna

eru: 3X-Stál, Aflvaki, Astra, Áburðarverksmiðjan, Ballard Inc., Borgey, Conexant,

Cyclops, Daimler-Chrysler, Eimskipafélag Íslands, Element, fiskvinnslustöðvar í

Vestmannaeyjum, Fiskeldi Eyjafjarðar, Flaga, Flugkerfi, Flugmálastjórn, Frjáls

fjölmiðlun, Fróði, Hugvit, Intís, Ísaga, ÍSAL, Íslandsbanki, Íslensk NýOrka/VistOrka,

Íslensk erfðagreining, Íslenska útvarpsfélagið, Kaupþing, Landsbankinn, Landssíminn,

Landsvirkjun, Lífshlaup, Lyfjaþróun, Lýsi, Marel, Máki, Mál og menning,

Mjólkursamsalan, Morgunblaðið, Norður, Norsk Hydro, Prentsmiðjan Oddi, Orkuveita

Reykjavíkur, Orkuveita Suðurnesja, OZ, Pharmaco, Pronova Biocare, Reykjavíkurhöfn,

Ríkisútvarpið, SÍF, Shell International, Steindórsprent-Gutenberg, Stiki, Stefja,

Taugagreining, Tryggingastofnun ríkisins, Urður Verðandi Skuld, Vaka-Helgafell, VÍS og

Össur.

• Samstarf við Reykjavíkurborg um ráðstefnur, þátttöku í verkefninu Reykjavík, menningarborg

Evrópu árið 2000, væntanlega stofnun Borgarfræðaseturs og sérfræðilega

ráðgjöf á ýmsum sviðum.

• Samstarf við almenning um menntun og fræðslu, en árlega eru haldnir við Háskóla Íslands

um 250 opnir fyrirlestrar, auk tuga málþinga og ráðstefna á 45 ólíkum fræðasviðum.

Háskóli Íslands er stærsti aðili á Íslandi á sviði sí- og endurmenntunar. Skráðir

nemendur hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands eru um 12.000. Háskóli

Íslands heldur árlega námskynningu fyrir framhaldsskólanemendur. Í tengslum við

deildir Háskólans eru starfrækt fjölmörg hollvinafélög.

• Samstarf við íslenskar rannsóknastofnanir, m.a. við Hafrannsóknastofnun, Hollustuvernd

ríkisins, Iðntæknistofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Norrænu

eldfjallastöðina, Orkustofnun, Rannsóknarráð Íslands, Rannsóknastofnun

byggingariðnaðarins, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Rannsóknastofnun

landbúnaðarins, Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála, Skógrækt ríkisins

Mógilsá, Veðurstofa Íslands og Veiðimálastofnun. Háskóli Íslands, Rannsóknarráð

Ísland og Iðntæknistofnun Íslands reka í sameiningu RIS – Rannsóknagagnasafn

Íslands sem er gagnabanki um íslensk rannsóknaverkefni.

• Samstarf við heilbrigðisstofnanir um rannsóknir og kennslu, m.a. við Landsspítalann,

Sjúkrahús Reykjavíkur og Krabbameinsfélag Íslands.

• Samstarf við aðra innlenda skóla á háskólastigi, m.a. um Samstarfsnefnd háskólastigsins,

um (fjar)kennslu og rannsóknir við Háskólann á Akureyri, Kennaraháskóla Íslands,

Samvinnuháskólann á Bifröst og Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og um

kennaramenntun við Háskólann á Akureyri og Kennaraháskóla Íslands.

• Samstarf við erlenda háskóla um rannsóknir, nemenda- og kennaraskipti. Á hverju ári

vinna kennarar og fræðimenn Háskóla Íslands að um 1300 rannsóknaverkefnum og

um þriðjungur þeirra er unninn í samstarfi við erlenda vísindamenn. Fastráðnir

kennarar við Háskóla Íslands dvelja að jafnaði þriðja hvert ár í eitt misseri við

rannsóknastörf við erlenda háskóla eða rannsóknastofnanir. Á síðastliðnum áratug

hefur fjöldi erlendra nemenda við Háskóla Íslands vaxið úr rúmlega 100 árið 1990 í 418

árið 1999 og Háskólinn býður þeim skipulega kennslu í íslenskri tungu og menningu. Í

gegnum Erasmus-áætlunina á Háskóli Íslands samstarf við 140 erlenda háskóla á

grundvelli 230 samninga og hann hefur gert tvíhliða samninga við 72 erlenda háskóla.

Auk þess á Háskólinn samstarf við 60 erlenda Háskóla gegnum Nordplus-áætlunina.

Árið 1999 var gerður samningur við 20 kanadíska háskóla sem eru í CREPUQsamtökunum.

Í gegnum Utrecht-netið á Háskóli Íslands samstarf við 23 háskóla í

Evrópu auk 16 háskóla sem eru aðilar að MAUI-netinu í Bandaríkjunum. Háskóli

Íslands er einnig aðili að ISEP-samtökunum sem opnar honum leið til samstarfs við

100 háskóla í Bandaríkjunum.

12

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!