11.01.2014 Views

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

Árbók Háskóla Íslands 1999 - Háskóli Íslands

SHOW MORE
SHOW LESS

You also want an ePaper? Increase the reach of your titles

YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.

sem nafni Háskóla Íslands er haldið á lofti. Háskólabíó greiðir ákveðið hlutfall af

tekjum sínum í Sáttmálasjóð sem notaður er til að styrkja háskólakennara til

fræðistarfa.

Starfsemi fyrirtækisins er fjölþætt: Kvikmyndasýningar, verslunar- og veitingarekstur,

rekstur tveggja myndbandadeilda, föst leiga á húsnæði til Landsbanka

Íslands, Háskóla Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Auk þess er nokkuð um

aðra leigu á húsnæði en einnig á tækniútbúnaði og starfsfólki í tengslum við ráðstefnur,

tónleikahald og margvísleg fundarhöld.

Hjá Háskólabíói starfa að jafnaði 60 starfsmenn en stöðugildi eru 35 að jafnaði á

ári. Framkvæmdastjóri Háskólabíós er Einar S. Valdemarsson, markaðsstjóri er

Ægir Dagsson og yfirmaður myndbandadeildar er Leó Pálsson.

Háskólaútgáfan

Starfsemi útgáfunnar var með svipuðu sniði og síðustu ár. Heildarfjöldi útgáfuverkefna

var tæplega 60. Þar af var fjöldi nýrra bóka alls 43, endurútgáfur fjórar,

rit í dreifingu fyrir aðila er tengjast H.Í. fimm. Önnur útgáfuverkefni af ýmsum

toga fyrir aðila innan Háskóla Íslands voru u.þ.b. sjö. Háskólaútgáfan er þriðja

stærsta útgáfa landsins ef litið er til fjölda útgefinna titla. Umfangsmesta ritið sem

útgáfan hefur sent frá sér til þessa leit dagsins ljós á árinu, en það var Heimspekisaga

etir Gunnar Skirbekk sem kom til landsins í tilefni af útgáfunni. Hér er

um að ræða 750 bls. ritverk, ríkulega myndskreytt sem spannar sögu heimspekinnar

frá dögum Forn-Grikkja til samtímans. Bókin hlaut hvarvetna jákvæða umfjöllun

í fjölmiðlum sem gengu svo langt að kalla útgáfu hennar menningarviðburð.

Á árinu var hafinn undirbúningur að því að útgáfan annaðist umsjón með og

framleiðslu á Kennsluskrá H.Í. og mun vinnsla hennar vafalítið skipa stóran sess

á verkefnalista útgáfunnar á komandi árum. Bóksala ársins nam alls um 15.000

eintökum. Starfsmenn eru þrír.

Hollvinasamtök

Háskóla Íslands

Starfsár Hollvinasamtaka Háskóla Íslands stendur frá 1. desember til jafnlengdar

næsta ár og miðast eftirfarandi yfirlit við það. Aðalfundur Hollvinasamtakanna var

haldinn 1. desember 1998 og var kjörin ný stjórn til tveggja ára. Anna Ólafsdóttir

Björnsson, sem hafði verið gjaldkeri samtakanna, gaf ekki kost á sér áfram og í

stað hennar gekk Bjarni Ármannsson til liðs við stjórnina. Af aðalfundi voru

einnig kjörin í stjórn Ragnhildur Hjaltadóttir og Steingrímur Hermannsson. Aðrir

stjórnarmenn eru Sigmundur Guðbjarnason sem kjörinn er af háskólaráði og

Kjartan Örn Ólafsson kosinn af Stúdentaráði Háskóla Íslands. Ragnhildur Hjaltadóttir

gegndi áfram formennsku á árinu, varaformaður var Sigmundur Guðbjarnason

og gjaldkeri Bjarni Ármannsson. Með stjórninni hafa einnig starfað formenn

Stúdentaráðs, Ásdís Magnúsdóttir og Finnur Beck, svo og fulltrúi rektors,

Jörundur Guðmundsson. María E. Ingvadóttir varð við beiðni stjórnar um að vera

varamaður í henni til tveggja ára og hefur hún starfað með stjórninni síðan.

Framkvæmdastjóri Hollvinasamtakanna er Sigríður Stefánsdóttir. Á árinu bættist

eitt hollvinafélag í hópinn, Vox academica en í því félagi eru gamlir félagar Háskólakórsins.

Stjórnarstörf

Stjórnin heldur reglulega stjórnarfundi. Þess á milli hafa formaður og einstakir

stjórnarmenn átt fundi með framkvæmdastjóra. Formaður og framkvæmdastjóri

hafa einnig átt fundi með ýmsum sem áhuga hafa á að leggja samtökunum lið í

fjáröflun og innra starfi. Fulltrúaráð Hollvinasamtaka Háskóla Íslands kom saman

í Skólabæ hinn 12. mars 1999. Umræður þar urðu uppspretta að hollvinadögunum

„Forvarnir – nýr lífsstíll“ sem samtökin og hollvinafélög heilbrigðisgreinanna

stóðu að.

139

Hooray! Your file is uploaded and ready to be published.

Saved successfully!

Ooh no, something went wrong!