You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Lagadeild og

fræðasvið hennar

Almennt yfirlit og stjórn

Fjöldi nemenda í lagadeild var 576 á haustmisseri 2005 og þar af voru nýnemar

191. Konur voru 288 og karlar voru einnig 288.

Á árinu 2005 störfuðu við lagadeild 9 prófessorar, 2 dósentar í fullu starfi, 2 dósentar

og 4 lektorar í hlutastarfi, 8 aðjúnktar og um 40 stundakennarar. Breytingar

á starfsliði kennara á árinu voru þær að Aðalheiður Jóhannsdóttir og Benedikt

Bogason fengu framgang í störf dósents, Brynhildur G. Flóvenz og Eyvindur G.

Gunnarsson voru ráðin í hlutastörf sem lektorar og Hafdís H. Ólafsdóttir og Jón

Þór Ólason voru ráðin aðjúnktar.

Páll Hreinsson tók við starfi deildarforseta 1. júlí 2005 og sama dag tók Viðar Már

Matthíasson við starfi varadeildarforseta. Breytingar urðu á stjórnsýslu lagadeildar

þannig að María Thejll tók að sér starf kynningarfulltrúa í hlutastarfi og Stella

Vestmann tók við 100% starfi fulltrúa. Auk þeirra starfa var skrifstofustjóri í 100%

starfi og alþjóðasamskiptafulltrúi í 50% starfi.

Kennslumál

Í lagadeild er boðið upp á þriggja ára 90 eininga nám til BA-prófs í lögfræði. Að

loknu BA-prófi er boðið upp á 60 eininga framhaldsnám til meistaraprófs sem

jafngildir embættisprófi í lögfræði og útskrifast nemendur með lærdómstitilinn

magister juris (mag.jur.). Framhaldsnámið er þannig byggt upp að nemendur

skulu ljúka 45e í valnámskeiðum auk 15e meistararitgerðar. Boðið er upp á u.þ.b.

10 valnámskeið á íslensku og 5 valnámskeið á ensku við lagadeild á hverju misseri,

og vegur hvert þeirra 3e. Hvert námskeið er að jafnaði kennt á tveggja ára

fresti.

Frá haustinu 2003 hefur verið boðið upp á rannsóknatengt meistaranám á ensku

við lagadeild með aðaláherslu á þjóðarétt og umhverfisrétt, „LL.M. in International

and Environmental Law“. Námið er skipulagt sem tveggja ára nám (60e) að loknu

BA-prófi í lögfræði eða 45e nám að loknu 4-5 ára grunnnámi í lögfræði. Í LL.M.-

náminu er boðið upp á rúmlega 20 námskeið auk ritgerða og verkefnavinnu.

Námskeiðin lúta öll að alþjóðlegri eða svæðisbundinni lögfræði eða lögfræðigreinum

með alþjóðlegu ívafi. Náminu lýkur með 15e meistararitgerð. Öll

kennsla, próf og verkefnavinna fer fram á ensku, enda er námsleið þessi og

námskeiðin ætluð erlendum lögfræðingum eða laganemum í stúdentaskiptum

sem og íslenskum lögfræðingum eða laganemum í framhaldsnámi, ef þeir síðastnefndu

kjósa að blanda saman námskeiðum á íslensku og ensku.

Nemendur við aðrar deildir Háskóla Íslands geta tekið þátt í tilteknum námskeiðum

við lagadeild sem hluta valnáms þeirra, einkum á sviði stjórnsýsluréttar og

fjármunaréttar, og fer þeim kostum fjölgandi. Er þannig boðið upp á BA- og BSpróf

með lögfræði sem aukagrein við nokkrar deildir HÍ þar sem stúdentar taka

lögfræðinámskeiðin við lagadeild.

Doktorsnám

Haustið 2004 var tekið upp við deildina 90 eininga doktorsnám í lögfræði. Markmið

doktorsnámsins er að veita doktorsnemum vísindalega þjálfun og búa þá

undir vísindastörf, m.a. háskólakennslu og sérfræðingsstörf við rannsóknastofnanir.

Doktorsritgerð við lagadeild skal metin til 90 eininga. Doktorsnám við lagadeild

er þriggja ára fullt nám. Stundi doktorsnemi námið að hluta má námið taka

allt að fimm ár. Doktorspróf við lagadeild, að undangengnu doktorsnámi sam-

Fjárveitingar og útgjöld lagadeildar

2003-2005 (þús. kr.).

2003 2004 2005

Útgjöld (nettó) 103.464 102.724 117.205

Fjárveiting 97.216 98.830 114.686

132