You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
30. september: Helgi Áss Grétarsson stud. jur.;

Umgengnisréttur - Framkvæmd umgengnismála hjá

sýslumanninum í Reykjavík og dóms- og kirkjumálaráðuneytinu

árin 2002-2003.

Kynningarstarf

Kynningarnefnd lagadeildar hefur það hlutverk að auka kynningu á deildinni, m.a.

með fræðafundum og málstofum, viðtölum, fréttatilkynningum og útgáfustarfsemi

ýmis konar.

Heimasíðu lagadeildar er ætlað að veita allar nauðsynlegar upplýsingar um nám

við deildina svo og almennar upplýsingar. Heimasíðan er í stöðugri vinnslu og

uppfærð reglulega enda er hún helsta kynningarefni deildarinnar og hefur komið

að verulegu leyti í stað sérstakra bæklinga um hana.

Lagadeild og Orator, félag laganema, standa einnig saman að kynningarfundum

um almenn og sérstök atriði varðandi nám við deildina og háskólanám almennt.

Lagadeild hefur, eins og aðrar deildir Háskólans, sérstaka kynningu á árlegri

námskynningu skóla á háskólastigi á vorin. Laganemar, kennarar og aðrir starfsmenn

deildarinnar mæta þar og veita ýmsar upplýsingar um laganámið, auk þess

sem dreift er bæklingum og blöðum um nám við lagadeild. Jafnframt hafa fulltrúar

Orators farið árlega með kynningar í framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu.

Árleg móttaka fyrir afmælisárganga kandidata frá deildinni, allt frá fimm ára upp

í 60 ára afmælisárganga, í samstarfi lagadeildar og Hollvinafélags deildarinnar,

fór fram að venju í Lögbergi í aprílmánuði. Mættu yfir 100 manns og var boðið

upp á léttar veitingar. Starfsemi lagadeildar og Hollvinafélagsins var kynnt og viðstöddum

boðið að gerast aðilar að Hollvinafélaginu.

Skráðir og brautskráðir stúdentar í lagadeild 2003-2005

2003 2004 2005

karlar konur alls karlar konur alls karlar konur alls

Skráðir stúdentar 228 256 484 231 265 497 273 297 570

Brautskráðir

Lögfræði 27 13 40 11 20 31 16 29 45

Lögfræði BA 13 10 23

Sjávarútvegsfræði MS 0 1 1

Lögritarar diplóma 3 3 1 4 5 0 4 4

Lögfræði LLM 1 1 0 3 3

Lögfræði doktorspróf 1 0 1

Samtals 27 16 43 13 24 37 30 47 77

Tölur um skráða stúdenta miðast við janúar árið eftir, þ.e. mitt námsárið.

Lagastofnun

Almennt yfirlit og stjórn

Stjórn Lagastofnunar var þannig skipuð árið 2005: Viðar Már Matthíasson, prófessor,

formaður og Stefán Már Stefánsson, prófessor, varaformaður, Páll Sigurðsson,

prófessor, Ragnheiður Bragadóttir, prófessor og Bjarni Aðalgeirsson,

laganemi meðstjórnendur. Forstöðumaður er María Thejll hdl. Við Lagstofnun

starfa fastir kennarar lagadeildar. Starfsmenn eru ráðnir á verkefnagrunni.

Rannsóknir – Styrkir frá atvinnulífinu

Árið 2005 voru 3 rannsóknastofur starfandi, í skattarétti, Evrópurétti og refsirétti

og afbrotafræði. Rannsóknastofa í refsirétti og afbrotafræði fékk styrk frá dómsmálaráðuneyti

til að lúka þeirri rannsókn en Hildigunnur Ólafsdóttir afbrotafræðingur

starfaði við rannsókn í refsirétti og afbrotafræði á árinu ásamt Ragnheiði

Bragadóttur prófessor.

134