You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
Háskólasetrið í Hveragerði

Almennt yfirlit og stjórn

Um sex ár eru frá því Háskólasetrið í Hveragerði tók til starfa. Þátttakendur undanfarin

þrjú ár hafa verið Háskóli Íslands, Landbúnaðarháskóli Íslands, Hveragerðisbær,

Rannsóknastofnunin Neðri Ás, Prokaria ehf., Heilsustofnun NLFÍ og

Sunnlensk orka. Samstarfssamningur um starfrækslu setursins rann út sl. áramót.

Þá hætti Heilsustofnun NLFÍ þáttöku en Orkuveita Reykjavíkur hyggst taka

við.

Í stjórn Háskólasetursins sitja nú Jakob K. Kristjánsson, fyrrverandi prófessor við

Líffræðideild Háskóla Íslands, formaður, Sigurður S. Snorrason, dósent við Líffræðideild

Háskóla Íslands, Arnþór Ævarsson, sameindalíffræðingur hjá Prokaria

ehf., Gísli Páll Pálsson, framkvæmdastjóri Dvalarheimilisins Áss/Ásbyrgis, Orri

Hlöðversson, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, Sveinn Aðalsteinsson, prófessor við

Landbúnaðarháskóla Íslands, Steinar Friðgeirsson, sviðsstjóri hjá RARIK og

Kristján Guðmundsson, yfirlæknir hjá Heilsustofnun NLFÍ.

Aðstaða

Í byrjun árs flutti framkvæmdastjóri Háskólasetursins vinnuaðstöðu sína að

Reykjum, í Ölfusi. Setrið leigir þar húsnæði og aðstöðu af Landbúnaðarháskóla

Íslands. Þar eru nú skrifstofur setursins ásamt sameiginlegri rannsóknarstofu

með Landbúnaðarháskóla Íslands og Rannsóknarstöð skógræktar. Á vormánuðum

fékk setrið einnig til afnota íbúð hjá Rannsóknastofnuninni Neðra Ási til að

nota sem fræðimannsíbúð. Setrið hefur auk þess fengið að halda þeirri vinnuaðstöðu

í Hveragerði sem Neðri Ás leggur því til. Sú aðstaða er til reiðu fyrir fræðimenn

og nemendur sem vinna að rannsóknarverkefnum, m.a. verkefnum sem

tengjast landshlutanum eða starfssviði setursins. Íbúðin var í láni frá miðjum

maí fram í september. Jafnframt var vinnuaðstaðan nýtt af sömu fræðimönnum.

Rannsóknir og þjónusta

Á árinu lauk úttekt og rannsókn á náttúrulegum baðlaugum á landinu. Verkefnið

var samstarfsverkefni setursins, Ferðamálaráðs Íslands, Ferðamálaseturs Íslands

og Prokaria ehf. Samantekt úr þeim upplýsingum sem aflað var hafa verið

birtar á Hveravefsíðunni (www.hot-springs.org). Á árinu vann Háskólasetrið m.a.

að verkefnum við flokkun vatna á Norðurlandssvæði eystra (Fnjóská, Skjálfandafljót

og Laxá í Aðaldal) og í Garðabæ (Urriðavatn). Auk þess annaðist setrið umhverfisráðgjöf

og mengunareftirlit í skólphreinsistöðinni í Hveragerði og tók saman

ársskýrslu fyrir hreinsistöðina. Á árinu komst á samstarf Háskólasetursins,

Hveragerðisbæjar og verkfræðideildar Háskóla Íslands um að nota Hveragerði

sem vettvang kennslu og rannsókna við deildina. Hveragerðisbær leggur verkfræðideildinni

til tæknilegar upplýsingar um bæinn eftir því sem nauðsyn krefur

og Háskólasetrið leggur til vinnuaðstöðu. Verkfræðinemendur í MS námskeiði um

fráveitur og skólphreinsun komu til setursins í verklegar æfingar í mengunarmælingum

á skólpi. Í samstarfi við Líffræðistofnun Háskóla Íslands og með styrk

frá Nýsköpunarsjóði námsmanna var unnið að rannsóknum á tveimur nýjum

landnemum í Hveragerði, varmasmiði (Carabus nemoralis) og túnhrossaflugu

(Tipula paludosa). Tækjakaupasjóður Háskóla Íslands styrkti Háskólasetrið með

kr. 400.000 til kaupa á víðsjá.

Háskólasetur Suðurnesja,

Sandgerði

Almennt yfirlit og stjórn

Háskólasetur Suðurnesja var formlega stofnað á árinu 2004. Háskólasetrið fellur

innan Stofnunar fræðasetra við Háskóla Íslands. Setrið er vettvangur samstarfs

Háskóla Íslands og sveitarfélaga á Suðurnesjum, stofnana, fyrirtækja, félagasamtaka

og einstaklinga. Háskólasetrið er staðsett á Garðvegi 1 í Sandgerði.

Meginhlutverk Háskólasetursins er að efla rannsókna- og fræðastarf Háskóla Íslands

á Suðurnesjum með því:

a) að stuðla að margvíslegri háskólakennslu á Suðurnesjum, eftir því sem kostur

er, í tengslum við grunn- og framhaldsnám, og stuðla að því að haldin

verði norræn og/eða alþjóðleg námskeið í Háskólasetrinu,

197