Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir II - Hirsla - Landspítali
Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir II - Hirsla - Landspítali
Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir II - Hirsla - Landspítali
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
197

Útskrift eftir mjaðmarbrot

jafnframt er bent á að sjúklingar nú á tímum eru betur upplýstir en nokkru sinni fyrr.

Sjúklingar búast við meiri og betri þjónustu en áður enda leggur heilbrigðiskerfið

meiri áherslu á að sjúklingar séu ánægðir vegna þess að þeir eru viðskiptavinir heilbrigðisþjónustunnar.

Stundum sammælast þær heilbrigðisstéttir, sem sinna ákveðnum

sjúklingahópi, um að útbúa eins konar ferli (e. critical pathway) fyrir sjúklingahópinn.

Þegar allir starfsmenn og sjúklingur vinna eftir þessu sama ferli verður samvinnan

betri.

Góð útskriftaráætlun er háð skilningi skjólstæðingsins og fræðslunni sem aðstandendur

hans fá. Skjólstæðingarnir þurfa að vita hvað þeir eiga að gera og hvernig

þegar þeir koma heim og vita hvað getur komið upp á. Ætlast er til að farið sé eftir

eftirfarandi ráðleggingum áður en skjólstæðingar fara frá heilbrigðisstofnunum (Joint

Commission on Accreditation of Healthcare Organisation (2002) í Potter og Perry,

2005):

• Fræða um örugga og áhrifaríka notkun á lyfjum og læknisfræðilegum búnaði

(e. medical equipment)

• Leiðbeina um hugsanlegar milliverkanir matar og lyfja og veita ráðgjöf um

næringu og breytingar á mataræði

• Leiðbeina um endurhæfingu sem auðveldar sjúklingum að laga sig að

umhverfinu og að geta séð sem mest um sig sjálfir [hreyfing, ADL]

• Segja frá þeirri samfélagsþjónustu sem er í boði (eftir þörfum)

• Greina frá hvenær og hvernig á að leita eftir meiri þjónustu

• Benda á ábyrgð skjólstæðingsins og fjölskyldunnar varðandi heilbrigðisþarfir

hans og þekkingu og hæfni sem þarf til að takast á við þessa ábyrgð

• Viðhalda góðu persónulegu hreinlæti og snyrtimennsku

Fram hefur komið að útskriftaráætlun með fjölskyldu felur í sér nákvæmt mat á

hvaða þarfir eru til staðar við útskrift ásamt möguleikum á að mæta þeim. Dæmi:

Skjólstæðingur útskrifast heim eftir aðgerð og aldraður eiginmaður treystir sér ekki til

að sjá um umbúðaskipti. Hjúkrunarfræðingur athugar þá hvort einhver annar í fjölskyldunni

eða nágranni getur og vill sjá um þetta. Ef svo er ekki sér hjúkrunarfræðingur

um að sækja um heimahjúkrun. Þarfnist skjólstæðingurinn einnig æfinga

og styrktarþjálfunar getur þurft að hafa samband við sjúkraþjálfara (Potter og Perry,

2005).

Í framhaldi af þessu fylgja hér niðurstöður úr nokkrum rannsóknum sem

tengjast útskriftaráætlunum.

Niðurstöður rannsókna á útskriftaráætlunum

Niðurstöður úr yfirlitsgrein frá Cochrane (Shepperd o.fl., 2004), þar sem bornar

voru saman 11 rannsóknir um útskriftaráætlun frá sjúkrahúsi og heim, sýndu að ekki

er augljóst hvaða áhrif útskriftaráætlun hefur á tíðni endurinnlagna, fjölda legudaga,

árangur meðferðar og kostnað. Þetta endurspeglar skort á stöðlum þar sem gagna-

199

198