Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir II - Hirsla - Landspítali
Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir II - Hirsla - Landspítali
Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir II - Hirsla - Landspítali
Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
219

Marta Kristjana Pétursdóttir lauk BS prófi í hjúkrunarfræði árið 1997. Hún hefur starfað

á hjarta- og lungnaskurðdeild og legudeild augndeildar Landspítala við Hringbraut. frá

árinu 1996. Marta lauk diplómaprófi á meistarastigi i hjúkrun aðgerðarsjúklinga fra

Háskóla Íslands árið 2009.

Ólöf Guðrún Ásbjörnsdóttir lauk BS prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið

2003. Hún hefur unnið á lýtalækninga- og brunadeild Landspítala frá því í janúar 2003..

Ólöf Guðrún er meðlimur í sárasamtökunum og hefur sótt ýmis námskeið tengd sárum

og sárameðferð. Hún er meðhöfundur að einni grein sem birtist í Tímariti

hjúkrunarfræðinga um næringu og sár.

Sesselja Jóhannesdóttir er hjúkrunarfræðingur á skurðdeild 13G á Landspítala. Hún lauk

BS prófi í hjúkrunarfræðí frá Háskóla Íslands 1994 og hefur starfað á Landspítala síðan.

Fyrstu tvö árin starfaði hún á lungnadeild, síðan í 13 ár á þvagfæraskurðdeild 13D og

loks á sameinaðri þvagfæra- og almennri skurðdeild frá 1. júní 2009. Hún lauk

diplómanámi á meistarastigi í hjúkrun aðgerðasjúklinga vorið 2009.

Sigfríður Héðinsdóttir útskrifaðist með BS gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands

1990 og lauk diplómanám í hjúkrun aðgerðasjúklinga vorið 2009 frá sama skóla.

Gegndi starfi hjúkrunarforstjóra hjúkrunar- og dvalarheimilisins Hornbrekku í

Ólafsfirði 1990 til 1991. Hjúkrunarfræðingur á Handlækningadeild FSA frá 1991 til

2004 og frá 2004 á Handlækninga- og bæklunardeild FSA.

Sigurbjörg Valsdóttir lauk hjúkrunarprófi vorið 2001 frá Háskóla Íslands og

diplómanámi í hjúkrun aðgerðasjúklinga frá sama skóla vorið 2009. Með námi og fyrsta

árið eftir útskrift starfaði hún á almennri meltingarfæraskurðdeild Landspítala en á

hjarta- og lungnaskurðdeild og legudeild augndeildar síðan 2002. Sigurbjörg hefur setið í

fræðslunefnd fagdeildar hjartahjúkrunarfræðinga sl. ár.

Sólveig Tryggvadóttir útskrifaðist með B.S. gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á

Akureyri 2003 og lauk diplómanámi á meistarastigi í hjúkrun aðgerðasjúklinga frá

Háskóla Íslands árið 2009. Samhliða hjúkrunarnámi starfaði Sólveig á Kvennadeild FSA

og síðar á Handlækningadeild FSA. Frá árinu 2004 hefur hún starfað á Handlækningaog

bæklunardeild FSA og Innritunarmiðstöð FSA. Sólveig hefur tekið þátt í innleiðingu

flýtibatameðferðar á FSA.

Steinunn Arna Þorsteinsdóttir útskrifaðist frá Háskóla Íslands árið 2007, með BS próf í

hjúkrunarfræði og hefur starfað á hjarta- og lungnaskurðdeild og legudeild augndeildar,

á Landspítala frá útskrift. Hún lauk viðbótarnámi á meistarastigi í hjúkrun

aðgerðasjúklinga síðastliðið vor og hóf klínískt meistaranám haustið 2009 með hjúkrun

aðgerðasjúklinga sem sérsvið. Frá hausti 2008 hefur Steinunn setið í fræðslunefnd

Hjúkrunarráðs Landsspítala.

221

220