Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir II - Hirsla - Landspítali
Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir II - Hirsla - Landspítali
Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir II - Hirsla - Landspítali
You also want an ePaper? Increase the reach of your titles
YUMPU automatically turns print PDFs into web optimized ePapers that Google loves.
212

Steinunn Arna Þorsteinsdóttir

SÍMAEFTIRFYLGD EFTIR ÚTSKRIFT

Niðurstöður rannsókna benda til þess að símaeftirfylgd sé gagnleg þjónusta við

sjúklinga og aðstandendur, meðal annars til að brúa bilið milli sjúkrahúss og heimilis

og gera þeim útskriftina auðveldari. Símaeftirfylgd sem hjúkrunarmeðferð þarf að

byggjast á fræðilegum grunni og framkvæmd hennar á gagnreyndri þekkingu. Talið

er æskilegt að símaeftirfylgd hjartaskurðsjúklinga sé veitt af sérfræðingi í hjúkrun

hjartasjúklinga eða hjúkrunarfræðingi með góða þekkingu á sjúklingahópnum

(Doering o.fl., 2002; Gallagher o.fl., 2004; Hartford, 2005; Savage og Grap, 1999).

Slíkt er nauðsynlegt til að geta veitt ráðgjöf um fjölþætt vandamál sem sjúklingahópurinn

glímir við. Einnig er mikilvægt að sá sem veitir slíka þjónustu hafi

þekkingu á samtalstækni, noti opnar spurningar og beiti virkri hlustun í samtölum

sínum við sjúklinga. Nota má einhvers konar gátlista yfir spurningar, bæði beinar og

opnar spurningar sem snúa að andlegri og líkamlegri líðan sjúklings og hvernig

honum gengur að fóta sig heima. Með slíkum gátlista væri ákveðinn grunnur að

þjónustunni lagður þó svo að hvert símtal væri síðan lagað að persónulegum

þörfum hvers og eins sjúklings. Símtal frá reyndum hjúkrunarfræðingi á hjartaskurðdeild

á fyrstu dögum og vikum eftir útskrift er góð leið til að styðja við

sjúklinga og veita þeim fræðslu og ráðgjöf og skima eftir hugsanlegum vandamálum.

Þar sem áhyggjuefni og vandamál sjúklingahópsins breytast með tímanum væri

ráðlegt að bjóða upp á annað símtal síðar, til dæmis sex til átta vikum eftir útskrift.

Líklegt er að sjúklingarnir hefðu þá aðrar spurningar en í fyrra samtalinu, meðal

annars varðandi lífsstílsbreytingar.

Á Landspítala hefur símaeftirfylgd við hjartaskurðsjúklinga ekki verið skipulagður

þáttur hjúkrunarþjónustunnar. Sjúklingar fá hins vegar nokkuð ýtarlega

útskriftarfræðslu fyrir útskrift ásamt aðstandendum og fá afhentar skriflegar upplýsingar.

Þeim er jafnframt boðið að hafa samband við deildina hafi þeir einhverjar

spurningar eða eigi við vandamál að stríða eftir að heim er komið. Fyrirkomulag

símaeftirfylgdar mætti útfæra á ólíka vegu. Ef innleiða ætti símaeftirfylgd á hjarta- og

lungnaskurðdeild sem stuðning við sjúklinga eftir útskrift mætti koma því þannig

fyrir að umsjónarhjúkrunarfræðingur hvers hjartaskurðsjúklings byði honum símtal

eftir útskrift og í sameiningu myndu þeir ákveða hentuga tímasetningu fyrir símtalið.

Samkvæmt þeim rannsóknum, sem hér hafa verið skoðaðar, væri heppilegur tími

fyrir símtal frá hjúkrunarfræðingi á fyrstu tveimur vikunum eftir útskrift (Johnson,

2000; Savage og Grap, 1999). Kostir þess að umsjónarhjúkrunarfræðingur sjúklingsins

hringi í hann eru þeir að viðkomandi hjúkrunarfræðingur þekkir sjúklinginn

og gang hans mála eftir aðgerðina og líklegt er að á milli þeirra ríki trúnaðarsamband.

Annað fyrirkomulag símaeftirfylgdar gæti verið á þann hátt að einn til tveir reyndir

hjúkrunarfræðingar myndu veita þessa þjónustu. Þannig væri tryggt að allir

sjúklingarnir fengju sambærilega þjónustu, en á móti kemur að meðferðarsamband

milli sjúklings og hjúkrunarfræðings væri ekki til staðar í öllum tilfellum.

214

213