Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir II - Hirsla - Landspítali
Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir II - Hirsla - Landspítali
Aðgerðasjúklingar liggja ekki aðgerðalausir II - Hirsla - Landspítali
Create successful ePaper yourself
Turn your PDF publications into a flip-book with our unique Google optimized e-Paper software.
218

hjúkrunar- og dvalarheimilisins Dalbæjar á Dalvík frá 1985 til 1997. Starfaði á

Heilsugæslustöðinni á Dalvík sem deildarstjóri í skólahjúkrun og fl. á árunum 1997 til

2002 og síðan sem hjúkrunarfræðingur á Bæklunardeild FSA 2002 til 2004 og frá 2004 á

Handlækninga og Bæklunardeild FSA. Heiða hefur tekið þátt í innleiðingu

flýtibatameðferðar á FSA .

Herdís Sveinsdóttir er prófessor í hjúkrunarfræðideild við Háskóla Íslands og

forstöðumaður fræðasviðs hjúkrunar aðgerðasjúklinga, jafnframt samhliða starfi á

Landspítala-háskólasjúkrahúsi. Hún lauk doktorsprófi frá háskólanum í Umeå í Svíþjóð

vorið 2000. Rannsóknir hennar hafa að mestu snúið að heilbrigði kvenna, vinnuvernd

og hjúkrun aðgerðasjúklinga.

Katrín Blöndal lauk BS prófi í hjúkrunarfræði árið 1985 og meistaraprófi frá Royal

College of Nursing Institute/Manchester University og Háskólanum á Akureyri 2004.

Árið 2007 fékk hún sérfræðileyfi í hjúkrun aðgerðarsjúklinga. Hún hefur frá útskrift

starfað á skurðlækningasviði Landspítalans, meðal annars við verkefnastjórn og sem

sérfræðingur í hjúkrun aðgerðarsjúklinga frá árinu 2007. Katrín hefur til margra ára sinnt

kennslu nema og hefur frá 2007 gengt stöðu aðjúnkts við Háskóla Íslands.

Kristrún Þóra Ríkharðsdóttir útskrifaðist með B.S. gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskóla

Íslands 1990 og diplómanámi á meistarastigi í hjúkrun aðgerðasjúklinga 2009 frá

Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur á Handlækningadeild FSA

frá 1990 til 2004 og frá 2004 á Handlækninga- og bæklunardeild FSA.

Kolbrún Eva Sigurðardóttir útskrifaðist úr hjúkrun frá Hjúkrunarfræðideild Háskóla

Íslands vorið 2001 og lauk diplómanámi á meistarastigi í hjúkrun aðgerðasjúklinga árið

2009 frá Háskóla Íslands. Frá útskrift hefur hún starfað á skurðlækningasviði LSH, fyrst

á brjóstholsskurðdeild en lengst af á almennri skurðlækningadeild 13G og er starfandi

aðstoðardeildarstjóri þar í dag.

Kristjana Guðrún Halldórsdóttir útskrifaðist með BS próf í hjúkrunarfræði frá Háskóla

Íslands vorið 1989. Sumarið 1988 og fyrsta hálfa árið eftir útskrift starfaði hún á deild 13

D á Landspítala sem þá var þvagfæradeild og almennar handlækningar. Næsta starf var

á endurhæfingardeild fyrir aldraða í Lundi í Svíþjóð 1990-1995 en samhliða því lauk

Kristjana diplomanámi í stjórnun (Health Care Administration) frá háskólanum í Lundi

1994. Frá 1997 hefur hún unnið á Sjúkrahúsinu á Akureyri á Bæklunardeild sem varð að

Handlækninga- og bæklunardeild árið 2004. Kristjana lauk diplómanámi á meistarastigi í

hjúkrun aðgerðasjúklinga frá HÍ 2009.

Lilja Ásgeirsdóttir lauk BS prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands vorið 2003. Frá

útskrift hefur hún starfað á skurðlækningasviði Landspítala, á hjarta- og

lungnaskurðdeild og legudeild augndeildar. Lilja lauk diplómanámi á meistarastigi í

hjúkrun aðgerðasjúklinga frá Háskóla Íslands vorið 2009.

220

219